Fari það í heitasta!
Örfá skipti á ári komumst við öll þrjú á sama tíma austur á æskustöðvar mínar. Það bregst hins vegar ekki að ef við reynum að fara, þá kemur alltaf eitthvað uppá. Algengasta hindrunin er færðin. Töskurnar standa hérna tilbúnar, sá stutti var orðinn spenntur og allt..en þá hringir tengdapabbi- allt blint á heiðinni! Hann ráðlagði okkur að fara ekki. Mig bara dreplangar! Langar heim og borða kjötsúpuna hans pabba,skoða gamla herbergið mitt(eða það sem eimir eftir af því) og bara labba um plássið. Við ætluðum meira að segja að taka skemmtilegu spilin með okkur og þessi ferð var sko plönuð fyrir langalöngu.
Þetta er svo fúlt að mig langar að blóta!
*blót*blót*
Ég man líka eftir því að hafa lagt af stað austur á þorrablót með sparifötin hangandi í bílnum og allt ready þegar heiðinni var lokað á nefið á okkur.
Ég er að hugsa um að kaupa mér snjóruðningstæki, flugvél og riiiiisastóran jeppa fyrir barnabæturnar.... haldið þið ekki að ég eigi smá afgang eftir það fyrir bland í poka til að maula á leiðinni? ;)
Enn og aftur blót af stærstu gerð og njótið helgarinnar! Ég ætla að sitja inni í fýlu.


4 Comments:
Guð hvað ég skil þig.... skal bara blóta aðeins með þér.... *blót* *blót*...
En ég er orðin spennt að koma heim ef barnabæturnar hafa hækkað svona á íslandi... hmmm strax farin að spá í hvað ég á að kaupa *hugsihugs* nei nei það er víst ekki svo gott... hemm hemm
Knús og kram... vona að þið látið ykkur ekki leiðast...
kv Helga
Blótaðu bara, oft og mikið. (Bara ekki fyrir framan Ísak).
Jæja það var nú bara harkan sex! Við snerum við undir Eyjafjöllum. Keyrðum fram á vörubílinn sem valt svo það var allt stíflað. Enda var svo blint að við vorum nokkra stund að átta okkur á því hvar við vorum stödd. Gistum á Selfossi og fórum alla leið austur daginn eftir. Ein nótt er skárra en ekki neitt!!
líst vel á tig eygló mín.. bara íslenska trjóskan.. tad tídir ekkert annad.. tad er nú annad en fólkid hérna í úglandinu mínu.. tad má ekki koma smá rigning og tá bara canselast allt.. fólk bara fer ekki út úr húsi og bara situr heima og gerir ekki neitt tar sem ef tad eru trumur og eldingar má ekki vera med rafmagnstaeki mikid í sambandi sem tídir ekkert sjónvarp eda tolva eda tannig.. og fólk kann ekki ad klaeda sig í regnfot og svo er ekkert almennilegt holraesakerfi sem raedur vid rigninguna svo tad bara breytast goturnar í flót.. hehehe .. frekar fyndid.. ef vid íslendingar hugsudum svona tá vaerum vid bara alltaf heima ad gera ekki neitt.. hehehe
en gangi tér áfram vel med tittt..
STÓRT knús!!!
kvedja Ína Bjorg
Post a Comment
<< Home