mæ ó mæ..
Það er alt í rugli hér! Ég skrifaði laaaaaanga bloggfærslu áðan en hún kom auð inn. Tölvan mín fraus líka í dag í miðju verkefni og prentarinn minn er bilaður..alveg frábært.
Ég er búin að sitja inni alla helgina, ekki svo mikið sem búin að reka út nefið..eða ég lýg því nú..ég fór í banka á laugardaginn að vesenast í námslánunum. Annars hef ég bara setið glaseygð við tölvuna fram á nótt og reynt að læra. Verst er að mér finnst mér lítið verða ágengt og staflinn með ólesnum bókum og ókláruðum verkefnum er alveg himinhár svo það er freistandi að láta sér fallast hendur.
Hvað var ég að spá??
Það freistar mín afar mikið að fá að klípa í litla kútinn minn og dunda mér frekar með honum og stundum verður maður auðvitað að gera það, hann er alltaf númer eitt! En ég hef hins vegar varla náð að greiða á mér rytjurnar á höfðinu eða þvo framan úr mér mestu drulluna svo dögum skiptir..hvernig fer fólk að þessu?!
Nú fer veturinn að skella á og að því tilefni fer fyrsti kaffibollinn að krauma í nýju kaffivélinni sem við fengum í brúðkaupsgjöf. Ég þarf bara að gera upp við mig hvaða tegund ég vil helst..vil ég latte eða expresso..eða eitthvað annað ? Ef það er vont þá bara held ég fyrir nefið..ef kaffið nær að halda mér vakandi þá er tilganginum náð!
Annars er ekkert allt svart,ég bara þoli ekki að hafa meira á verkefnalistanum en mögulegt er að komast yfir..ég vil geta gert allt og gera það vel. Það er drasl hérna og ég vil helst geta tekið til á meðan ég les og hjólað á þrekhjólinu á meðan ég matast.. Þetta síðarnefnda ætti reyndar ekki að vera svo flókið þar sem ég er síétandi. Ég held án gríns að ég hafi aldrei á minni 25 ára ævi étið svona mikið af sælgæti! Enda finn ég botninn mýkjast og bumbuna stækka (nei ekki ólétt..bara nammi í minni bumbu). En það þýðir ekki að fást um það.. ef ég fitna og næ prófunum og verð góð mamma og á fínt heimili þá sleppur þetta... ;)
En auðvitað er ég ekki búin að leggja árar í bát, maður gefst ekkert upp fyrr en í fulla hnefana!! (er sko að fara að leika málshætti í tjáningu á þriðjudaginn,aðeins að hita upp..)
Bumba-yfir-buxnastrenginn-kveðjur
Eygló


0 Comments:
Post a Comment
<< Home