Army of me

Sunday, September 18, 2005

Hvernig fara einstæðu mæðurnar að ?

Ég skil ekki hvernig einstæðar mæður (jafnvel með mörg börn) fara að því að vera í skóla. Ég er harðgift kona með eitt og er ekki að finna tíma fyrir nám:S Ísak fékk gubbupest á fimmtudaginn svo ég fór algjörlega óundirbúin í skólann á föstudegi. Svo fór sá stutti á Selfoss á föstudaginn til að við gætum lært en þá tók Anton við og mér varð ekkert úr verki.
Önnur helgi sem fór í eitthvað rugl. Ég ætlaði að vera svo dugleg!!
Ohh hvað þetta er pirrandi. Það verður örugglega búið að reka mig fyrir jól..haha...

6 Comments:

At September 19, 2005 4:14 PM, Anonymous Anonymous said...

nei vá ég skil tad ekki heldur.. Ekki tad ad ég hafi reynslu á ad eiga barn.. en ég fékk alveg nóg reynslu á gardaborg.. ég gaeti tetta aldrei.. Mér finnst tú samt ýkt dugleg.. Gangi tér rosalega vel.. tú gerir tetta med trompi.. :D
Kvedja Ína

 
At September 20, 2005 4:03 AM, Blogger Eygló said...

Takk Ína mín :)

 
At September 20, 2005 11:09 AM, Anonymous Anonymous said...

Heyrðu gamla!! Nú er ég búin að vera upp í skóla í tvo daga og ég hef ekkert séð þig???? Ertu lögst í gubbu eða ferðu aldrei út úr skólastofunni????? ERtu kennarasleikja (híhíhí)

 
At September 20, 2005 1:47 PM, Blogger Eygló said...

Gunnur þú misstir sko af miklu í gær;) heldurðu að sú gamla hafi ekki bara verið í náttslopp og inniskóm með baðhettu og stór gleraugu í skólanum! Ég er ekki einu sinni að ljúga þó ég vildi eiginlega að ég væri að því;) ég var að leika í leikriti í Leikrænni tjáningu.
Og já þú ættir að sjá lagerinn af stóru glansandi eplunum hérna..ég tek með mér eitt í hvern tíma til að reyna að hækka einkunnirnar um jólin...muhahaha...

 
At September 22, 2005 8:27 PM, Anonymous Anonymous said...

Klukk!!! varst klukkud.. bendi á bloggsíduna mína fyrir frekari upplýsingar!

 
At September 23, 2005 9:50 AM, Anonymous Anonymous said...

gimsteinninn þinn hefur reyndar verið einstaklega heppinn með að fá pestir... ég dáist að þér! Veit samt að ég hugsa mig sko dáldið mikið um hvað barneignir og skóla varðar... enda á ég svoldið langt eftir... hehe... kv heiðdís

 

Post a Comment

<< Home