Army of me

Wednesday, August 10, 2005

Alltaf eitthvað sem kemur á óvart...

Anton fór í salinn í dag og á móti honum kemur stúlkan sem vinnur þar og segist þurfa að segja honum slæmar fréttir. Það semsagt sprakk vatnsleiðsla í salnum og gólfið skemmdist sums staðar. Við þurfum að kaupa einhvers konar dregil (vorum að spá í að kaupa rauðan..híhíhí) til að breiða yfir vatnsskemmdirnar. Einnig kom í ljós að borðin í salnum eru allt of fá svo það var hlaupið upp til handa og fóta til að finna borð á leigu. Þetta er alveg hillaríös! :)

Annars fór ég í svakalegt dekur í dag, var bara orðin besta vinkonu snyrtidömunnar því ég var þarna svo lengi. Fékk rosa flottar og glansandi táneglur, endrauðar kinnar (sem jafna sig vonandi sem fyrst) eftir eitthvað rafmagnsdótarí og fínar augabrúnir og alles:) Þegar ég ætlaði að fara að borga, sagði konan bara að það væri búið að borga þetta, það hefði komið einhver maður og borgað! Ég hringdi strax í pabba sem sagðist hafa borgað (með kortinu hennar mömmu reyndar..hahaha) og ég verð nú að viðurkenna að ég varð bara pínu klökk:) Ekkert smá fallega gert!! Við værum líka ekkert að gifta okkur ef pabbi og mamma væru ekki að borga svona mikið..þvílík yndi!:)

Ég var semsagt smurð inn í krem í allan dag, fór svo á einhverja kremakynningu í kvöld þar sem við vorum látnar smyrja á okkur hverju kreminu á fætur öðru svo mér finnst bara vera farið að leka krem út um eyrun á mér..!! Svo er það meira pjatt á morgun og snatterí.

Later
Eygló

3 Comments:

At August 11, 2005 9:23 AM, Anonymous Anonymous said...

hehe.. það er rétt.. þetta á ekki að ganga snuðrulaust hjá ykkur..
En vá hvað þetta dekur hljómar vel.. ég ætla sko pottþétt í svona einhverntíman.. kannski þegar (ef) ég gifti mig ;)

 
At August 11, 2005 10:46 AM, Anonymous Anonymous said...

Jahérna, Gleygló! Anskotans vesen á þessum sal. Vonum bara að hann verði svo ekki bara tvíbókaður á laugardaginn hihi.

En dekrið áttu skilið. Alltaf gott að láta maka á sig kremum.

 
At August 12, 2005 1:17 AM, Blogger Eygló said...

Jújú reyndar var salurinn líka tvínókaður..en við vorum á undan! jeii. Og með kremin..já ég held ég sé með ofnæmi fyrir einhverju þeirra af útliti mínu núna að dæma.....great

 

Post a Comment

<< Home