Ef fall er fararheill..
..þá er ég við það að ganga inn í fullkomið hjónaband og frábæran brúðkaupsdag..!!
Endalaust vesen með þetta pakk (já ég sagði og skrifaði PAKK) sem stendur að salnum. Allir lofa öllu fögru og svo benda þau á hvort annað og enginn gerir neitt. Bókuðum tíma til að skoða salinn fyrir helgi með veislustjóra og veisluþjónustugaur og yfirkonu skreytinganna. Ekki málið, töluðum við "Forsetann" sem sagðist skyldu koma sjálfur ef pían sem á að gera þetta væri busy.
Svo hringjum við í allan dag í salinn og aldrei svarar neinn. Endum með að hringja í Forsetann (asnalegt að vera forseti nördaklúbbs) sem bendir samstundis á símanúmer þessarar pú. Nema hvað,pían sú var með slökkt á símanum í allan dag..svo við hringjum aftur í forsetann mikilvæga..sem sagðist þá vera staddur á Sauðárkróki!!! Spyr hvort við getum komið klukkan 7 og við samþykkjum það..og hringjum í alla og breytum tímanum.
Mætum á slaginu 7..maðurinn mætir aldrei..og salurinn fullur af fólki á spilakvöldi!!! Það kemur maður á móti okkur og segir að við séum að koma á vondum tíma og ætlar að henda okkur út en við vorum bara fúll á móti og hann leyði okkur að skoða okkur um (sem var náttúrulega eiginlega ekki hægt,en skoðuðum frammi í staðinn). Svo kemur kerlingarbeygla fram og sussar á okkur!!! AAAARRRGGG. Við erum að borga fyrir þennan píííp sal! Hrauna sko yfir þennan sal við alla sem heyra vilja hér eftir.
Kveðja Eygló..ansi heitt í hamsi.


2 Comments:
Aha. eygló! Ég fann þig og nú get ég sko njósnað um þig. Já, skil vel að kellingin hafi verið orðin pirruð á salar málunum. Djös pakk! En gangi þér vel um helgina, góða ferð út og allt það. Ekki súpa of mikið. Veit að þú gerir það stundum sko :)
Þín Gunnur
ojj.. vonda liðið..puff...ég stend sko alveg með þér ;).....
Post a Comment
<< Home