Úff..
..Ég er enn að reyna að melta þetta frúarkonsept (já ég íslenskaði ritun þessa orðs svona smá..!). Ekki það að það veltist fyrir mér að vera að fara að giftast og allt sem því fylgir..það er bara titillinn sem þvælist svolítið fyrir fótunum á mér. Frú Eygló..nei það hljómar asnalega. Ég sé fyrir mér brjóstastóra konu í upphlut-Frú Eygló býður ekki upp á innfallna, goofy stúlkukind.. En svona er þetta..
Ég held annars að veislan verði suddalega fín. Við hittum veislustjórann í gær (vinkona mín til margra ára) og hlógum og spjölluðum og það komu fullt af hugmyndum upp úr krafsinu. Eftir allt saman þá held ég að þetta verði bara að sumu leiti frumlegt og ekki eins og aaaaalveg öll hin brúðkaupin. Ekkert Barbie-og Ken leikja brúðkaup eins og í brúðkaupsþættinum Já.
Ég sótti glösin í dag úr áletrun. Varð svo að skila þeim aftur því það stóð Eygló IÐA á glasinu mínu..og ekki í fyrsta sinn!! Alveg gargandi snilld.
En þetta er allt að smella- mátaði kjólinn í síðasta skipti í dag og mér til mikillar gleði, þarf að þrengja hann svolítið;) Ég er viss um að þær stunda þetta á leigunni til að ýta undir egóið hjá verðandi frúm.
Svo er það New York að brúðkaupi loknu..og skólinn strax eftir það. Meeen hvað mér er illt í maganum þegar ég hugsa um skólann! Það verður bara fyrsti dagurinn í Fjölbraut x 100 all over again! Þekki ekki hræðu,kann ekki neitt og skil ekki rass. Það verður örugglega forvitnilegt!!
Segjum þetta gott af tilgangslausu bloggi í dag. Anna mín, ég skrifa fyrir þig fyrst þú segist fíla innihaldslaus blogg!!
Glóin


0 Comments:
Post a Comment
<< Home