Army of me

Friday, August 05, 2005

Ojbara

Ég er komin með svo mikið ullabjakk á þessari íbúð. Ömurlegt að ganga á teppi sem maður veit að öll heimsins efni hafa fallið í. Við skötuhjúin gerðum lauslega úttekt á því sem hefur dottið í gólfið bara hjá okkur- og Guð má vita hvað hafði dottið í það hjá þessum tveimur familíum sem trömpuðu á teppinu á undan okkur! En nú stöndum við bara frammi fyrir því að hafa valið brúðkaup og skólagöngu fram yfir þetta viðbjóðslega teppi og því ekki til króna með gati til að henda því út og kaupa annað gólfefni. Að maður tali ekki um tíma-og sinnuleysi af verstu gerð. Mig alveg dreymir um fallega íbúð þar sem allt er okkar og dettur ekki í sundur þegar maður kemur við það..ohh hvað það væri næs:)

Svo skánaði ekki ástandið þegar ég sá að "MTV Cribs" var í sjónvarpinu og Missy Eliott var að sýna höllina sína. Bara skrilljón glansandi skópör, risa baðherbergi..risa allt. Og glansandi porsche og Hummer og aðrar drossíur í innkeyrslunni. Voðalega er þessu misskipt. En ég kann auðvitað ekki að syngja né rappa..þar liggur kannski stærsti vandinn ;)
En svo horfir örugglega fólkið sem býr í pappakassa öfundaraugum á mig fyrir það að fá að búa þar sem ég bý.

En hvað sem því líður,þá bara missti ég mig alveg óvart og reif upp teppið á ganginum eins og óð manneskja. Gólfið undir er litlu skárra og plan mitt um að þrífa gólfið og lakka yfir það, datt eiginlega uppfyrir. Svo er kannski ekkert sniðugt að vera að þessu viku fyrir brúðkaup..veit ekki. Svo ég lagði bara teppið pent yfir ganginn aftur eins og ekkert hefði ískorist..nema það er auðvitað laust á gólfinu núna!

Hver býður sig fram í að koma og redda íbúðinni ? ;) djók

Vá..ég er viss um að lesendur (lesandi) hafa sótt sér popp og kók við aflestur þessa skemmtilega teppabloggs. Hvað er meira spennandi en teppi sem hefur sankað að sér öllum frumefnum jarðar? :)

4 Comments:

At August 05, 2005 4:15 PM, Anonymous Anonymous said...

ó já .. ég kannast við svona gömul teppi.. heima hjá mér.. þ.e. heima hj´aömmu minni er teppi sem er svona 50 ára og skrilljón börn örugglega búin að pissa á og svona.. væri alveg til í að losna við það.. bara spurning hvort er betra laust eða fast teppi ;)

 
At August 05, 2005 4:19 PM, Blogger Eygló said...

Já kræst..eitt efnanna á listanum okkar var einmitt piss og gubb eftir drenginn! Ásamt ýmsum matarleifum og svona flottheitum:p

 
At August 05, 2005 8:27 PM, Anonymous Anonymous said...

Hmmm ég hef nú lítið um þetta teppi að segja þar sem ég heyri nú sennilega undir eina af familíunum sem á undan þér voru....en ég missit ekki mikið niður get ég sagt þér. Hmmm en ég skil þig samt vel og ég er meira en lítið til í að hjálpa til þegar þú vilt. Þú veist það.
En núna held ég þú ætti að hugsa meira um brúðkaupið sem í vændum er og þetta teppi má fara lönd og leið í huganum í bili.

 
At August 19, 2005 12:53 PM, Anonymous Anonymous said...

Ohh..þú ert ótrúleg...;)
.....það sem þér dettur í hug :D

 

Post a Comment

<< Home