Frúin er komin ;)

Jæja..það sannaðist bara að fall er fararheill. Ég náði að endurheimta upprunalegt andlitsfall í tæka tíð, athöfnin var yndisleg, sonurinn stilltur og prúður og vinkonur mínar sungu eins og englar.
Brúðkaupsferðin var engu lík, alveg frábær í alla staði.
Sonurinn á svolítið erfitt uppdráttar þessa dagana,saknar foreldra sinna sem báðir eru á kafi í vinnu og skóla og hann sjálfur að skipta um deild á leikskólanum..en þetta fer vonandi allt að smella:)
Það er allt að fara af stað í Kennó,er einmitt að hlaupa út á námskeið núna svo ég verð að fá að skrifa meira seinna! Svo hrúga ég inn fleiri myndum við tækifæri!
Bless í bili
Frú Eygló


5 Comments:
Æi, hvað það er gott að vita að allt saman hafi farið vel hjá ykkur. Og stattu þig nú í skólanum. Ef þig vantar eitthvað s.s. bækur tékkaðu á mér fyrst áður en þú ferð til Steinars í Bóksölunni og verslar. - En þegar þú verslar þar þá skalltu skila kveðju frá mér og segja honum að ég fer alveg að koma að versla við hann. skólinn minn byrjar nefnilega aðeins seinna en þinn.
kv
Gunnur
já...hehe. Einn galli er þó á gjöf Njarðar (jii...svona verður maður háfleygur þegar maður elst upp í þorpi!) og hann er sá að mikið til er verið að taka upp nýjar kennslubækur eða nýjar útgáfur.
Það á að græða á litlu busunum þetta árið...
Úff hvað ég er fegin að sjá að þú varst lík sjálfri þér.
svo hér ertu að fela þig kona (g)óð! ;) .. ekkert verið að segja manni það ....
Já var ég ekki búin að segja þér af þessu Ásta? úbbosí :)
Anna: Já þetta slapp ótrúlega fyrir horn, það sést ekki einu sinni neitt svo mikið á myndunum hvað ég var með þykkt lag af meiki..haha.. svoo ólíkt mér að vera með meik :p en bara gaman að því.
Post a Comment
<< Home