Army of me

Thursday, September 08, 2005

Ég sat ásamt bekkjarfélögum mínum undir miklum reiðifyrirlestri kennara í gær. Þegar tímanum var lokið og við vorum búin að fá að heyra allt um það hversu ömurleg við værum og hversu erfitt þetta yrði fyrir okkur, gengum við út með höfuðverk og magapínu og sumir jafnvel eilítið fölir á að líta.
Í dag er hins vegar öldin önnur..þennan reiðifyrirlestur fáum við bara einu sinni til tvisvar í viku og nú er vika í þann næsta ;) Eins gott að njóta þess að anda á meðan!

Ég sveiflast svolítið á milli þess að finnast ég vera í leikskóla eða virtum háskóla..svo misjöfn eru fögin á þessari önn-maður er ýmist að vinna að þungum verkefnum þar sem einn punktur má alls ekki skolast til, eða vinna verkefni sem eru svo óljós og út um allt og öllum er alveg sama :) Það er bara fínt að hafa fjölbreytni í þessu...

Jæja...kallinn minn í vinnunni og sonurinn á leikskólanum og kominn tími á mig að fara í skólann að læra smá ;)

Tsjá
Eygló

4 Comments:

At September 08, 2005 10:30 AM, Anonymous Anonymous said...

Jeminn, ekki hef ég nú verið skömmuð en, en hef þurft að sitja undir ótal (misskemtilegum) íslendingabröndurum, það er alveg magnað hvað þessu fólki finnst við skrítin og skemtileg.

 
At September 09, 2005 7:58 AM, Blogger Eygló said...

Já ég held að Íslendingar séu sér kapítuli út af fyrir sig..kannski einmitt helst út af því að íslendingum finnst þeir sjálfir stórmerkilegir;)

 
At September 10, 2005 8:05 AM, Anonymous Anonymous said...

Já, maður er nú töluvert ringlaður þarna uppfrá til að byrja með. Vonandi er ég ekki búin að gleyma þessu öllu saman þegar ég kem þarna í þarnæstu viku. Þá getum við setið saman og haldist í hendur.
En lífið er lukka og ekki gleyma því.

PS Ég keyrði fram hjá Kennó í gær dag og sá rútur þar fyrir utan. Líklega laugavatnsferðin. Ein geggjaðasta upplifun lífsins í kennó. En horror að vera skipuleggjandinn. Var það tvö ár í röð.... úfff. Óánægt fullt kvennfólk..... jéminn!!

 
At September 11, 2005 8:06 AM, Blogger Eygló said...

Já ég gerðist partýpooper aldarinnar og sleppti Laugarvatnsferðinni og sá ekkert eftir því miðað við hvað það rigndi..brr.. Ég skellti mér í staðinn í sushi-partý í minimalískri íbúð með hámenntuðu fólki. Sagðist mjóróma vera í leikskólakennaranámi..hahahaha

 

Post a Comment

<< Home