Army of me

Wednesday, September 28, 2005

Skítakuldi er þetta! Ég fæ samt alltaf svo góða nostalgíu þegar ég labba út úr skólanum á daginn með höfuðið þungt af inniveru og torskildum textum. Ég hugsa alltaf til þess þegar ég var lítil að labba heim úr skólanum og stundum mætti bökunarlyktin mér þegar ég kom inn. Í minningunni finnst mér eins og mamma hafi alltaf verið að baka því það er eitthvað sem ég man svo eftir.

Í gærkvöldi var ég nánast komin að því að hætta í skólanum, gefa skít í heila klabbið og flytja til fjarlægs lands, slíta öllu sambandi við umheiminn og búa í strákofa. Ég sofnaði útfrá einni skruddinni, bölvandi sjálfri mér í sand og ösku og málaði alla veggi svarta í huganum.

Í morgun vaknaði ég og var bara talsvert brattari. Um hádegi hafði mér vaxið ásmegin þrátt fyrir afar letjandi fyrirlestra. Í lok dags var ég farin að gefa skít í að gefa skít í þetta...

Einhverjir myndu kalla mig geðklofa... ;) Svona er maður stundum skrítinn..

Og núna er ég aftur föst í góðu nostalgíunni minni með bláa skólatösku í bleikri úlpu....

4 Comments:

At September 30, 2005 6:48 AM, Anonymous Anonymous said...

dagarnir eru sko misjafnir einsog teir eru margir, kannast alveg vid thetta med ad langa barad gefast upp, serstaklega thegar thad gengur illa hja manni eda ef efnid er leidinlegt... ja eda bædi... svo vex manni asmegin og allt gengur allt i einu upp... goda helgi sæta min
kv heiddis

 
At September 30, 2005 11:46 AM, Anonymous Anonymous said...

Já það er oft þetta litla sem maður man eftir í æsku og situr svo fast í manni! Eins og t.d. lykt eða annað! Ekki man maður eins eftir action körlunum, barbídúkkunum eða jafnvel Disney ferðinni þó að það sé allt þarna einhversstaðar! ;0)
Alltaf gaman að lesa þín skrif! Góða helgi! ;0D

 
At October 01, 2005 9:13 PM, Anonymous Anonymous said...

hehe.. já.. svona er tetta.. kannski svipad og ég hef verid ad fara í gegnum hérna í úglandinu.. stundum langar mig bara heim og sleppa tessu.. adra daga er ég haestánaegd med ad hafa drifid mig svona langt í burtu.. hehe svona er madur skrítinn.. en gangi tér vel saetust.. ég stid tig í huganum.. hehe ;)

 
At October 02, 2005 3:20 PM, Blogger Eygló said...

Takk Ínan mín :)

 

Post a Comment

<< Home