Army of me

Thursday, October 06, 2005

Ég stend í örlitlum slag við augnlokin þessa stundina. Grenjandi rigning úti, búin að skutla gullinu mínu á leikskólann og kom heim til að fá mér morgunmat áður en haldið skal í skólann. Það er frí í skólanum í dag en ég er að fara í hópavinnu í málstofuverkefni..ullabjakk. Hlakka svo til þegar þetta verkefni er búið!
Ég er að drukkna í einhverju ofnæmi enn eina ferðina. Er svo þvoglumælt og illskiljaleg að það er eins gott að ég vinn ekki í útvarpi..haha ;) Öll bólgin og krambúleruð(hvernig skrifar maður þetta orð? :S) í munninum og það er ógeð!

Sundurlaust blogg.. ég ætla að fara og einbeita mér að honum Grundtvig mínum heittelskaða (je ræt)

Kveðja, Eygló

5 Comments:

At October 07, 2005 10:48 AM, Blogger Anna said...

Áfram Eygló, áfram Eygló...o.s.fr

 
At October 07, 2005 11:16 AM, Anonymous Anonymous said...

fyrirgefðu hvað ég er sein að taka við mér en...um klukkið...borðar spergilkál en ekki gult nammi???? Að þú skulir segja frá þessu!!!!

 
At October 07, 2005 5:03 PM, Blogger Eygló said...

Já góða besta..það sem ég hef séð af þínum matarserimóníum er nú varla hæft á prenti svo þú skalt bara passa þig;)

 
At October 08, 2005 4:14 PM, Anonymous Anonymous said...

Skemmtileg síða hjá þér vinkona!!!! á reyndar eftir að skoða hana ennþá betur;)

 
At October 15, 2005 3:58 PM, Anonymous Anonymous said...

Hvernig er það, Gleygló. Drukknuð í námsbókunum. Verð upp í kennó á mið og fimmt vonandi sé ég þig þá.
kveðja
gunnur

 

Post a Comment

<< Home