
Er það rétt skilið hjá mér að það sé búið að taka rauða ópalið af markaðnum ? Ópalframleiðslumenn eru sko aldeilis að reyna að losa sig við birgðirnar af rauða ópalinu,ég er í þessum skrifuðu orðum að japla á rauðu ópali úr grænum pakka! Ég keypti 3 pakka á föstudaginn til að maula í sumarbústaðnum yfir lærdómnum með ektamanninum, og það var svona 50% grænt ópal á móti 50% rauðu í öllum pökkunum! Stórmerkilegt alveg.
Annars var sumarbústaðarferðin alveg hreint yndisleg. Við lágum yfir bókunum og átum til skiptis, ég strippaði óvart smávegis fyrir nágrannana (engar gardínur...ætla ekkert að útskýra þetta frekar) og ég afrekaði að sitja í heilar 5 mínútur í heita pottinum (sem leit frekar út eins og blátt lítið plastbaðkar).
Túrílú
Eygló


3 Comments:
Hola hermosa!
gott hjá tér ad strippa fyrir nágrannana.. hehehe.. ég hef einmitt átt svipad móment sjálf.. hehee nema tad voru mínir eiginlegu nágarnnar.. ;) en vid skulum ekki fara nánar út í tad.. gangi tér áfram vel og ég held áfram ad fylgjast med tér. mú hahaha.. hehehe... kvedja úr úglandinu...
Díses, maður rétt bregður sér úr landi og landinu er snúið á haus!!! Hvað næst? Brennivín í dós!!!
Anna, ég þori ekki að hugsa þá hugsun til enda!
Post a Comment
<< Home