Army of me

Sunday, January 22, 2006

Helgin

Það hefur gengið eitthvað erfiðlega að læra um helgina, enda svosem búið að vera nóg að gera. Bóndadagurinn var náttúrulega á föstudaginn og ég sendi Ísak í pössun og bauð Antoni mínum út að borða. Maturinn var vondur og þjónustan léleg en það var samt gaman að komast út að borða bara tvö saman.

Svo átti Anton 25 ára afmæli í gær. Við fengum okkur súkkulaðihúðuð jarðarber og kökur og svona sukkerí í tilefni dagsins og svo eldaði ég kvöldmatinn.. eyddi öllu kvöldinu í eldhúsinu. Við vorum svo södd eftir matinn að bæði eftirmaturinn og allt nartið sem ég ætlaði okkur að borða fyrir framan sjónvarpið, var enn ósnert í eldhúsinu þegar við vöknuðum í morgun !

Í dag fór ég með skrilljón kassa í geymsluna hjá Lísu systur, ég var að ganga frá fötum sem stubburinn er vaxinn upp úr,veitti ekki af.

Ísak er að reyna að venjast því að hafa parket, hann rennur á rassinn í tíma og ótíma en finnst þetta samt gasalega smart eins og von er ;)

Í nótt verður það bara bleksterkt kaffi og lestur út í eitt. Ég verð að gefa þessari önn sjens þó hún hafi ekki byrjað neitt sérstaklega glæsilega hjá mér :/

Meira seinna

6 Comments:

At January 22, 2006 1:55 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með kallinn.... og skilaðu afmæliskveðju til hans frá okkur.....
Knús og kram...
Helga & co... sjáumst eftir smá á ÍSLANDI... ;)

 
At January 23, 2006 9:16 AM, Anonymous Anonymous said...

Knús til hamingju með anton. Til hamingju með parketið líka. kv heiðdís.

 
At January 23, 2006 3:19 PM, Blogger Eygló said...

takk, stelpuskjáturnar mínar :)

 
At January 24, 2006 12:13 PM, Anonymous Anonymous said...

hæhæ til hamingju með strákinn ;) hvað er hann orðinn gamall???
En Anton? Er það sá sem var með okkur í FSu? :) ..ef hann var ekki bara með í kórnum líka?

Er það hann???
Ég veit ekki neitt?!?!
Fann þennan link á þig hjá honum Svan :D Alltaf svo gaman að finna fólk sem maður þekkti hér einu sinni...
Bestu kveðjur, Íris Símonar úr FSu ;)

 
At January 24, 2006 2:15 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með karlinn! ;o)
-Oddný

 
At January 24, 2006 3:56 PM, Blogger Eygló said...

Takk stelpur :)

Jú Íris, þetta er hann Anton úr FSu sem var í kórnum ;) ég ákvað að vera barasta ekkert að skila honum eftir framhaldsskólagönguna ;) Vona að hann sé pikkfastur..híhí

 

Post a Comment

<< Home