Army of me

Monday, January 16, 2006

Kemur allt með kalda vatninu

Jæja, þá er búið að mála og parketið er næst á dagskrá. Þegar við vorum að fara að leggja parketið í dag með dyggri aðstoð Kidda mágs, kom það í ljós að allir veggirnir eru skakkir og enginn þeirra hornréttur. Sá/þeir sem smíðaði blokkina hafa sennilega gert þetta bara eftir auganu og minninu.. ;) En þetta hefst vonandi á morgun, kemur allt með kalda vatninu eins og maður segir. En oh boy hvað ég er glöð að vera laus við þennan brjálæðislega græna lit úr stofunni!!!

Við ryðjumst hér um allt og ef við mætumst á miðri leið þá er nauðsynlegt fyrir annað okkar að bakka. Við borðuðum kvöldmatinn á gólfinu inni í herberginu hans Ísaks (Ísak fannst það reyndar alveg svakalegt sport!) og það er ógerningur að komast leiða sinna án þess að reka sig í eitthvað. Og ef við rekum okkur í eitthvað og það dettur í gólfið, þá er eiginlega ekki séns að taka það upp aftur ;) Frekar pirrandi en samt er þetta stuttur tími og við vitum að þetta er bara liður í því að gera íbúðina flottari :). Reyndar gleymdi ég þessum happy thoughts í smá stund þegar ég datt um stól inni í svefnherbergi í dag.

Ég þoooooli ekki þennan snjó! Hvað er málið ? Sko ég þoli alveg snjó en ég þoli ekki þetta veðurfar, ekki hægt að ryðja því þetta er óðara komið aftur. Og svo þarf ég að skafa tíu sinnum af bílnum með brotna geisladisknum okkar. Það liggur við að maður fari að fjárfesta í rúðusköfu.

Á morgn fæ ég að fræðast um vettvangsnámið. Það verður spennandi að sjá hvort ég fæ upplýsingar um það á hvaða leikskóla ég verð send :)

Í dag var ég að dansa og syngja en á morgun verður bóklegur dagur. Ágætis blanda.

Segjum þetta gott í bili.

Glógló :)

1 Comments:

At January 19, 2006 12:17 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæ eskan mín

Vá veistu ég skil hvað það er pirrandi að uppgötva það að allt er skakkt og engir veggir samsvara neinu, við lentum líka í þessu :(
En þetta kemur :) hihi

Jæja var bara á röltinu á netinu og ákvað að kvitta hjá þer duglegasta mín :)

Sjáumst í skólanum á morgun :*

 

Post a Comment

<< Home