Háskóli? hehehehe
Í gær var ég í skólanum að læra um litablöndun og sat þar af leiðandi fyrri part dags við það að mála. Eftir hádegið spiluðum við á tréverk (sílófóna) og trommur og bjuggum til tónverk sem mér sklst að við eigum að flytja í mars eða eitthvað. Á morgun fer ég svo í íþróttir og ég á ekki einu sinni íþróttaföt :S
Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að skrifa meira núna..ég fann mér pínulítinn blett til að setjast á með tölvuna á hnjánum og er að kálast í bakinu. Það er allt í rúst því við erum búin að tæma stofuna. Við eigum 125879483720796594 bækur og annað eins af geisladiskum.. !!! Hlakka til þegar það er allt orðið fínt hér aftur.
Lísa mín er farin út og endar líklegast í Kuala Lumpur. Ég sakna hennar fullt!!
Skrifa meira þegar andinn kemur yfir mig.
Kv. Eygló


4 Comments:
ohh mig langar í svona "litunar" háskóla (; algjör snilld (: Gaman að lesa bloggið þitt esskan.
Luv, Gulla selfossmær
gangi ykkur vel að standsetja. knus heiðdís
Elsku dullan min, mikið verður gaman að koma heim og sja hvað allt verður orði fint hja ykkur. Verðið þið ekki annars buin þa ? hehehe. Sakna þin alveg mega mikið fullt lika. Ekki lata Isak gleyma mer. Þið eruð allaf i hjarta mer.
Love you
þin Lisa alltaf
vííí .. bíðum spennt eftir að koma í heimsókn og sjá íbúðina eftir endurbæturnar :) ... alveg merkilegt hvað maður á mikið af dóti (sem kemur í ljós þegar maður "þarf" að taka til)
Verðum að fara að hittast með gaurana :)
Post a Comment
<< Home