Army of me

Thursday, March 02, 2006

Drottning apanna

Já.. ég er drottning apanna, það leikur enginn vafi á því. Í gær, í miðjum tónmenntartíma, hrópaði ég upp yfir mig því skyndilega mundi ég það að ég skildi skó barnsins eftir á bílþakinu. Þegar ég hafði lokið við að festa drenginn í stólinn, settist ég inn í bíl og brunaði af stað. Eftir hádegi fór mig að ráma í þetta og sá skóna fyrir mér í vasa óprúttins aðila eða sundurtætta á hraðbraut Reykjavíkur. Eftir að hafa básúnað tíðindunum rækilega yfir allan hópinn, sest ég inn í bíl og í farþegasætinu bíða litlu strigaskórnir eftir mér. Algjör api.

Ég er svona á öllum vígstöðum. Í ræktinni um daginn var ég að reyna að spreyta mig á pallaæfingum (sem ég er by the way alveg búin að gefa upp á bátinn)sem er svosem ekki í frásögur færandi nema það að ég sparka svona snilldarlega í vatnsbrúsann minn í einu sparkinu sem kom auðvitað langt á eftir öllum hinum. Ég neyddist því til að smokra mér á milli allra kvennanna sem voru að ná sporunum og sækja brúsann með skottið á milli lappanna. Stuttu seinna rúlluðu lóðin mín aftan á konuna sem stóð fyrir framan. Apadrottningin ég.

Ég lærði réttan texta gleðibankans fyrir um mánuði síðan.. samt búin að hafa nokkuð mörg ár til að læra hann. Gleðibankinn er ekki eina lagið sem ég hef misskilið hrottalega.

Það er af nógu að taka. Kannki ég láti hitt eiga sig í bili !

Kveðja frá apadrottningunni

11 Comments:

At March 02, 2006 9:37 AM, Blogger Anna said...

hmm hvernig söngstu þá Gleðibankann?

 
At March 02, 2006 10:14 AM, Anonymous Anonymous said...

hahaha ég hló alla færsluna, þú ert náttla bara yndisleg eygló :)

 
At March 02, 2006 4:38 PM, Blogger Eygló said...

Tja þegar kemur að apaskap þá komast fæstir með tærnar þar sem ég hef hælana!

Anna: Hmm hér kemur EITT dæmi..af mörgum.. : "þú leggur ekki inn í gleðibankann tóma krús". Mér fannst þessi krús alltaf frekar púkó og var oft að spá hversu margir söfnuðu klinki í krús og færu svo með það í bankann!

 
At March 04, 2006 12:26 PM, Anonymous Anonymous said...

Þú ert yndi Eygló mín, það var gaman að vera með þér í ræktinni og horfa á brúsann fljúga... nei nei ýki nú smá :) *stórt apaknús*

 
At March 05, 2006 2:25 AM, Blogger Eygló said...

Hehehe nei það versta er að þetta eru engar ýkjur..vesalings brúsinn flaug barasta. Ég get alveg séð fyrir mér að þetta hafi verið svolítið kómískt fyrir þig þar sem þú sást fyrst brúsann koma fljúgangi og mig svo koma rjóða í kinnum á eftir honum. Össs sko..endan veginn megagella hún Eygló ;)

 
At March 05, 2006 10:12 AM, Anonymous Anonymous said...

Hahahaha þú ert snillingur! :D

 
At March 07, 2006 6:58 AM, Anonymous Anonymous said...

þú ert bestust apadrottningin mín. hehehehe..

 
At March 07, 2006 7:26 AM, Anonymous Anonymous said...

Já hehee, þetta var frekar skondið :) En eitt Eygló. Af hverju ert hætt að koma í þessa tíma ?? :P tíhí Ferð bara í hjólatímana núna... þetta var ekki svo slæmt sko *hóst* :) *hlátur úti í horni*

 
At March 07, 2006 1:40 PM, Blogger Eygló said...

hehehe já hlæðu bara! :D held ég hafi bara fundið það að hæfileikar mínir leynast annars staðar en á pöllunum *hóst*

 
At March 10, 2006 2:34 AM, Anonymous Anonymous said...

Æ þú ert bara yndi ;) Sé þig sko í anda í tímanum :D

 
At March 12, 2006 11:05 AM, Anonymous Anonymous said...

YOU VE BEEN HIT BY THE

|^^^^^^^^^^^^|
|BEAUTIFUL truck | |""";.., ___.
|_..._...______===|= _|__|..., ] |
"(@ ) (@ )""""*|(@ )(@ )*****(@

ONCE YOU VE BEEN HIT, YOU HAVE TO HIT 8 Beautiful People IF YOU GET HIT AGAIN YOU LL KNOW YOU RE REALLY BEAUTIFUL! IF YOU BRAKE THE CHAIN, YOU LL BE CURSED WITH UGLYNESS FOR 10 YEARS SO PASS IT HIT WHO EVER YOU THINK IS BEAUTIFUL!
kv heiðdís

 

Post a Comment

<< Home