Army of me

Saturday, February 25, 2006

Nei sko..nýtt blogg!

Þetta er náttúrulega engin frammistaða..ekkert blogg svo dögum skiptir!

Ótrúlegt en satt þá er ég bara búin að vera dugleg að mæta í ræktina, sleppi einum og einum degi úr en fer oftast einu sinni á dag. Ég er alveg búin að finna tímana sem ég fíla.. ég er greinilega svolítið fyrir Spinning..og er ekki að meika palladraslið ;) Ég fór í tíma í morgun og gerði mig að fífli aldarinnar, var bara ekki að ná sporunum fyrir mitt litla líf!! Ég er samt viss um að ég gerði góðverk og bjargaði deginum hjá þeim sem stóðu fyrir aftan mig, svona svo að maður líti á þetta með augum Pollýönnu.

Það er endalaust mikið að læra,ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja. Ætla að reyna að læra núna fram eftir kvöldi,búin að vera í afmæli í allan dag og það er líka afmæli á morgun...nóg að gera. Át yfir mig og hlakka til að reyna að losa mig við afmælisgumsið í hjólatíma í fyrramálið.

Ísak er farinn á Selfoss með ömmu sinni og afa, hann fékk að fara með þeim eftir afmælið og svo fáum við hann aftur í afmælinu á morgun. Ég er strax farin að hlakka til,sakna hans alltaf þegar hann er ekki hjá mér :)

Annars er ekkert að frétta..

Skrifa bara meira seinna!

Glóda

0 Comments:

Post a Comment

<< Home