Laugardagur til lukku
Góðan daginn laugardagur !!!

Þá er törnin nánast á enda og næsta törn byrjar á mánudaginn...jeiiii ! Ég þarf að skrifa eina ritgerð sem ég komst ekki í að skrifa í törninni og lokaskil á henni eru næsta fimmtudag. Ég þyrfti samt að klára hana um helgina til að vera ekki með ritgerðina ofan á öll verkefnin í verknáminu...já verknámið byrjar nefnilega á mánudaginn!! Ég er svoítið kvíðin fyrir því en held samt að þetta verði líka bara skemmtilegt. Mig langar samt mest að gefa smá skít í þetta í dag og skella mér í sund og ísbíltúr með litla stubbinn minn! Kæruleysi í gangi..úffff....
Eigið góðan dag fólk !!
Glóda


1 Comments:
Helló skvísí! Bara forvitni í mér, hvar ertu í verknámi? Issss þú rúlllar þessu upp eins og öllu sem þú tekur þér fyrir hendur.!
knús og kram frá Selfossi
Gullan
Post a Comment
<< Home