Öss öss þetta er engin frammistaða! Ekkert blogg svo dögum skiptir! Ég get nú ekki endalaust verið drottning apanna í bloggheimum þó ég sé það vissulega í kjötheimum;). Héðan er allt fínt að frétta, búið að vera alvegBRJÁLAÐ að gera í skólanum en það er svona aðeins að saxast á þetta núna,próf á morgun og ritgerð um helgina og svo er það verknámið á mánudaginn. Ég er búin að fá væna gommu af verkefnum fyrir verknámið..júbbíííí.... Fór og heimsótti æfingaleikskólann minn áðan og leist bara ljómandi vel á þetta alltsaman, fínt starfsfólk og falleg börn og krúttlegur skóli.
Ég er enn að klaufast.. um daginn kom ég út úr blokkinni og var mikið að flýta mér,orðin í seinni kantinum með drenginn á leikskólann. Ég þurfti að sjálfsögðu að renna á hálkubletti og detta á rassinn í eina pollinn á öllu planinu! Fór rassblaut á leikskólann og í bakaríið áður en ég fór heim að skipta um buxur fyrir skólann, ótrúlega lekker og elegans. Bara svona svo þið vitið það að ég er ennþá við sama heygarðshornið!
En látum okkur sjá..hvað hefur á daga mína drifið... ? Jú sennilega það fyndnasta í langan tíma er keilumót á vegum skólans. Ég fór með 3 bekkjarsystrum mínum að keppa og það var spilað á öllum brautum. Við settum nördagenið í gang og UNNUM keppnina !! (lesist: þær unnu og ég fékk að vera með..hehe..). Við fengum þennan líka "flotta" farandbikar sem er í líki risastórrar keilu á einhverjum tréstampi.. já kannski pínu nördalegt!! Og við sitjum uppi með þessi herlegheit í ár!! En keilumótið leiddi til þess að við skelltum okkur frítt á árshátíð því að við unnum miða á árshátíðina, ekkert nema gott um það að segja.
Ég gerðist svo frökk að bjóða bekknum heim í litlu íbúðina fyrir árshátíð. Það var eins og í síldartunnu en samt ótrúlega gaman! Skemmtilegasta síldartunna sem ég hef stigið fæti inn í !
Sjáið bara allt fólkið! Og þetta var svona hvert sem litið var, ekki séns að ná öllum saman á mynd:) bara gaman sko :D
Hér fylgir svo ein með til gamans af mér með Viky og Maríu,bekkjarsystrum mínum og vinkonum :)Segjum þetta gott núna
En þið vitið allavega að ég er enn á lífi og enn að gera mínar gloríur!!


0 Comments:
Post a Comment
<< Home