Geitungafífl
Í nótt dreymdi mig að það kom geitungur inn í stofu. Það er svosem ekkert óeðlilegt við það, þessi litlu skrímsli smjúga alls staðar inn á sumrin. Þessi tiltekni, draumkenndi geitungur elti mig hins vegar fram á gang og byrjaði að reyna að stinga mig aftur og aftur. Í draumnum lá ég á gólfinu og skýldi á mér höfði og hnakka á meðan ég fann litla kvikindið fljúga á mig hvað eftir annað af ótrúlegum krafti.
Ég ætla að giska á það að mig hafi verið að dreyma einkunnina sem ég kvíði fyrir!


0 Comments:
Post a Comment
<< Home