Army of me

Tuesday, May 09, 2006

Óheppni ?

Í gær kláraði ég skólann. Frekar ljúft skal ég segja ykkur! Það skyggði reyndar töluvert á gleðina að ég held að ég hafi drullað langleiðina upp á herðablöð í prófinu í gær. Úbbosí sko. Huggaði mig reyndar smá við það að það gekk mörgum illa.

Það var æðislegt veður og ég skrúfaði upp í útvarpinu og rúllaði niður gluggunum á bílnum til að fá að njóta sumarsins og frelsisins í smá stund...frekar ljúft en ekki lengi!

Á miðri nýju Hringbrautinni kemur stærðarinnar brún slumma á bílrúðuna mína.. og ég er ekki að tala um fuglaskít nema þetta hafi verið risavaxinn 300 kg sterafugl ! Það voru bara bílar í kring svo ég giska helst á það að það hafi einhver gubbað út um gluggann hjá sér og skilið afraksturinn eftir á bílnum mínum.. bílrúðunni, húddinu og allri hliðinni.

Ég verð nú að segja það að sjarminn fór svolítið af þessari tilraun minni til þess að njóta próflokanna. Ég þurfti náttúrulega að rúlla upp öllum rúðum hið snarasta vegna óbærilegs fnyks og lækkaði bara í útvarpinu í leiðinni..alveg dottin úr stuði af einhverjum ástæðum.

Ég held að ég sé alveg týpan til þess að verða fyrir eldingu.. tvisvar í röð.

7 Comments:

At May 09, 2006 4:40 PM, Anonymous Anonymous said...

hahaha svona lagað getur bara komið fyrir þig Eygló mín;)

 
At May 09, 2006 6:21 PM, Blogger Eygló said...

Já ég er farin að hallast að því að heppnin forðist mig eins og heitan eldinn!!

 
At May 10, 2006 9:24 AM, Blogger Anna said...

Hvernig ferðu ð þessu???

 
At May 10, 2006 11:20 AM, Blogger Eygló said...

Anna mín, þetta er viss hæfileiki sem hlotnast ekki öllum. Ég bara þefa uppi asnalegar aðstæður og held að þær þefi mig líka uppi...geggjað sko..

 
At May 11, 2006 5:14 AM, Anonymous Anonymous said...

ég hef náttúrulega bara aldrei heyrt annað eins..gubba á bílinn já.. það getu bara Eygló Ido lent í.. hehehe.. en til hamingju með að vera buin með skólann.. ég hlakka ýkt mikið til að byrja í mínum ;)

 
At May 16, 2006 7:05 AM, Anonymous Anonymous said...

Þú ert svo mikil snúlla!

 
At May 16, 2006 8:10 AM, Anonymous Anonymous said...

Haha:D til hamingju með að vera búin með skólan;D

 

Post a Comment

<< Home