Gömul :/
Ég er orðin gömul. Hræðilega gömul á svo margan hátt og mér líkar það bara ekki nógu vel.
*Ég er hætt að geta vakað á nóttunni án þess að líða illa daginn eftir.
*Get ekki djammað ef ég á að vinna daginn eftir því ég þarf minn 10 tíma svefn eins og gamla fólkið.
*Nöldur og raus fer í mínar fínustu og ég get alveg orðið brjáluð þegar það er suðað og suðað í mér.
*Sjálf get ég samt nöldrað og nöldrað eins og fjörgömul kerling og verið gjörsamlega óþolandi.
*Ég eyði laugardagskvöldunum flestum heima sofandi í sófanum eða glápandi á imbann.
Vá..er ég sorgleg eða hvað ?? :S Ég held ég þurfi að fá göngugrind í afmælisgjöf :I


10 Comments:
Hahaha... þú ert æði..... ég er sko byrjuð að safna fyrir grindinni..... hahaha... spurning hvort þú verðir ekki að gefa mér göngugrind fyrst því ég á afmæli á undan hahaha.. Knús Helga
Já ég var einmitt að panta svona göngugrindaveðlista, hann ætti að fara að koma í hús og þá þarf maður ekki einu sinni að fara út fyrir hússins dyr til að kaupa afmælisgjöfina:D
hehhehehe Eygló mín hvað bull er í þér ;) við tökum eitt gott tjútt saman næsta laugardagskvöld;) þá færðu tækifæri til þess að hanga ekki heima á laugardagskvöldi og horfa á imbann ;) sjáumst hressar/verðum í bandi !!!
Vá alveg kannast ég við þennan lista;)
Spurning hvort við getum ekki bara fengið magnafslátt ef við pöntum saman? ;)
hehehe jú Ásta, við skulum spá í það ;) Og Ína, það getur bara vel verið að við sjáumst í bænum, aldrei slíku vant er sú gamla að fara í afmælispartý sem gæti allt eins endað niðri í bæ ef úthald og gamlir fætur leyfa ;)
hahaha....ellin alveg að fara með mig..sé það núna, mörgum dögum seinna að ég ruglaði saman Nínu og Ínu ;) þetta er að verða grafalvarlegt mál !! ;)
Já þetta er orðið háalvarlegt mál Eygló mín! Á ég að finna góðan öldrunarlækni handa þér? ;)
heyrðu já takk, Ásta mín, það væri bara hreint ekki úr vegi að fara að athuga þau mál, gott að hafa góðan öldrunarlækni til taks. *ræ í gráðið*
hehe Eygló mín.. þú ert náttúrulega bara fyndin.. en ég er nú alveg fjórum árum yngri en þú og ég er farin að finna fyrir þessum einkennum ellinnar... kannski bara við skjellum okkur á djammið saman til að afsanna kenninguna þína og rifja upp gamla GArðabæjardaga.. hehehe
þetta hljómar allt of kunnuglega, bættu við því að umgangast unglinga og skilja ekki slangrið, og segja stöðugt sögur af því "þegar ég var á ykkar aldri sko..." og ég er í göngugrindarhópnum
Post a Comment
<< Home