Góðan og blessaðan daginn.
Á fimmtudaginn fór ég í röntgen til að athuga með endajaxlana sem ætla ekki að komast upp. Svo hitti ég skurðlækni sem sagðist þurfa að skera mig í tætlur (eða hann orðaði það kannski aðeins fínna). Annar jaxlinn er semsagt hálfur undir beini og hinn liggur á HLIÐ! Já og ég er ekkert að djóka með þetta. Mig langaði helst að biðja um að fá að eiga myndina..hehe. Ég fer í þessi ósköp 13.júlí og má ekkert gera í nokkra daga á eftir. Doksi sagðist ætla að dópa mig rækilega upp og ég verð með glaðloft og svona dótarí allan tímann..verð gáfuleg eftir það, eins og ég er nú gáfuleg fyrir!
Svo nú er á dagskránni að njóta lífsins þangað til það verður krukkað í túlanum á mér. Það hefst með smá bekkjarteiti í kvöld sem að vísu lítur út fyrir að verða ansi fámennt en góðmennt.
Ég er að fara í Ikea á eftir...jeiii ég elska Ikea.. :) (er það nokkuð ellimerki þegar uppáhalds búðin er Ikea?)


2 Comments:
OMG ég þarf líka að fara að athuga með mína jaxla, langar helst ekkert til að láta taka þá!!!
En ikea... ég veit ekki, mér finnst líka gaman að fara í ikea...annars er uppáhalds búðin mín kaupfélagið á Egilsstöðum!!! ég er kannski líka að verða gömul
hehehe er aldurinn farinn að segja til sín, Ingibjörg mín ?;) Heyrðu, við hefðum átt að skella okkur í þetta saman, þá hefðum við getað vorkennt hvorri annarri á msn
;)
Post a Comment
<< Home