Army of me

Saturday, July 01, 2006

Mamma ársins

Þrátt fyrir það að upp sé runninn ágætis laugardagur ætla ég að leyfa mér að blogga um síðasta sunnudag, semsagt fyrir akkúrat 6 dögum.

Hann elskulegi afi Diddi átti afmæli svo við Ísak ákváðum að skella okkur til þeirra í sumarbústaðinn í smá afmæliskaffi í tilefni dagsins. Sá stutti færði afa sínum rósavönd og rosalega krúttlega höfuðfætlu-mynd af afa Didda. Anyways.. Svo var komið að því að halda heim á leið og ég ætlaði sko aldeilis að vera tímanlega í því svo drengurinn kæmist í sunnudagsbaðið og í bælið á skikkanlegum tíma.

Eftir að hafa knúsað og kysst alla bless, smelli ég drengnum í bílstólinn og festi hann rækilega. Svo skelli ég veskinu mínu og bíllyklinum í farþegasætið frammí og lendi svo á smá kjaftatörn. Bílhurðunum er lokað og í því læsir helv... bíllinn sér! Og semsagt..barnið (pikkfast í stólnum) og lykillinn læst inni!

Nú upphófust svaka læti og tilburðir, allir að reyna að hugsa upp einhverjar hugmyndir, dýrka upp lásinn (sem var nota bene vonlaust á svona rafmagnsdrifnum hurðum), reyna að láta krakkann losa sig úr stólnum (sem var líka vonlaust) og fleira sem var mis gáfulegt. Að lokum bað ég pabba að hringja á lögguna því ég sá fram á að þetta gengi ekki upp svona.

Löggan kom á hraðri siglingu, tveir hraustlegir karlmenn í einkennisbúningum og eftir smá þankahríð ákváðu þeir að spenna upp hurðina með skrúfjárni og læða vír inn í bílinn. Eftir talsverða fyrirhöfn og tilheyrandi spennu, náðu þeir að krækja í lykilinn sem svo var réttur til litlu hetjunnar minnar. Hann ýtti svo á fjarstýringuna og var þar með orðinn laus! Þetta tók 2 tíma og ég er mest hissa á því hvað drengurinn minn var rólegur..enda svosem ekki annað hægt þegar maður á svona klaufska mömmu sem sífellt lendir í vandræðalegum mómentum.

Ef þið sjáið einhvers staðar auglýsingu um tilnefningu á mömmu ársins þá held ég svona ykkur að segja að ég kæmi sterklega til greina... (eða ekki?).

Hugrún frænka var með myndavélina á lofti, ég smelli myndunum inn þegar mér hafa borist þær með rafpósti.

4 Comments:

At July 03, 2006 4:01 AM, Anonymous Anonymous said...

Mer finnst þu alveg verðug mamma arsins, ef ekki væri nema hægt að dæma af þvi hvað þer hefur tekist vel að ala hann Isak upp, annars hefði drengurinn aldrei verið svona rolegur.
Þu ert æði og hann lika.
Love you
Lisa

 
At July 03, 2006 4:34 AM, Anonymous Anonymous said...

:D Maður getur ekki annað en brosað að þessu.

En tek heilshugar undir með Lísu - þrátt fyrir þetta ævintýri ættir þú fyllilega skilið að fá "Móðir ársins" :)

kv.Ásta

 
At July 03, 2006 7:53 AM, Blogger Eygló said...

æ hvað þið eruð sætar við mig stelpur!! *Bráðn*

 
At July 06, 2006 11:39 AM, Anonymous Anonymous said...

hahaha þetta var nú skondin saga og gott að hún endaði vel og það hefðu nú ekki öll börn verið svona róleg allann þennann tíma :)

 

Post a Comment

<< Home