Army of me

Monday, July 17, 2006

Endajaxlatakan blessaða veldur því að ég ervakandi á furðulegustu tímum. Sem er ágætt að sumu leyti, svona svo að maður reyni að líta á björtu hliðarnar. Jú, ég til dæmis bætti metið mitt í collapse, mest ávanabindandi leik allra tíma.

Ég sé samt svolítið eftir fríinu mínu, bara 4 virkir frídagar eftir. En það verður svosem fínt að fara að vinna aftur, og svo tekur skólinn bráðum við. Að vísu nenni ég ekki að byrja í skólanum strax þó það verði gaman að hitta flesta aftur. Svo verður spennandi að sjá hvort það kemur nýtt fólk í bekkinn og svona, alltaf eitthvað um það, og svo eru jú einhverjir sem snúa ekki til baka. Ég veit allavega um tvo bekkjarfélaga sem eru ekki lengur í bekknum. Nei þrjá.

Þetta er að verða ansi hreint slappt blogg sem inniheldur mestmegnis raus um ekki neitt. Merkilegt hvað það er hægt að skrifa mikið um alls ekki neitt.

5 Comments:

At July 18, 2006 6:04 AM, Anonymous Anonymous said...

Hey hverjir verða ekki lengur í bekknum okkar ???

Tell me .... ég er svo forvitin

 
At July 18, 2006 6:16 AM, Blogger Eygló said...

Hmm...Bopit, Guðni og Björk. Er það ekki rétt hjá mér ?

 
At July 18, 2006 6:35 AM, Anonymous Anonymous said...

hahahah jú auðvitað ég var bara búin að gleyma Bopit - þetta er mikið rétt hjá þér kella mína ;)

 
At July 18, 2006 1:39 PM, Blogger Eygló said...

Já kellan er ekki svo galin þrátt fyrir óheyrilega háan aldur ;)

 
At July 19, 2006 12:38 PM, Anonymous Anonymous said...

hehehhhheheheh neinei ekki svo galin kellan ;)

 

Post a Comment

<< Home