Army of me

Tuesday, July 11, 2006

Halló halló

Já ég er hér enn og bara búin að vera nokkuð skandalalaus síðastliðna daga!

Við Ísak erum komin í sumarfrí og erum bara búin að vera upptekin við að vera saman. Pabbi hans tekur svo við á fimmtudaginn þegar ég fer í jaxlatökuna. Ég er búin að vera að viða að mér alls konar aulalegum tölvuleikjum og skrifa niður langan lista af bíómyndum sem krefjast þess ekki að maður hugsi. Svo sendir maður bara kallinn út á videoleigu ;) Fyrst ég má ekkert gera er um að gera að vera eins löt og mögulegt er!

Ég er alveg orðin rugluð hér, búin að hlusta á Línu langsokk og söngvaborg til skiptis..og þetta er allt bleikt í sjónvarpinu okkar. Eins mikið og ég er hrifin af bleikum í litlum skömmtum þá er þetta meira en góðu hófi gegnir. Ég er sko alveg búin að gleyma því hvernig Sigga Beinteins lítur út með hvítar tennur.

1 Comments:

At July 14, 2006 6:20 AM, Blogger Linda said...

Já, það er sko um að gera að láta stjana við sig, á svona stundum.

Láttu stjana við þig útí eitt og njóttu þess.

kv. Linda

 

Post a Comment

<< Home