Army of me

Wednesday, November 08, 2006

Þá er dagur að kveldi kominn. Já æ ég ætla nú ekkert að fara að blogga eins og ég sé komin á tíræðisaldurinn, bara langaði svo að skrifa þetta svona í upphafi tilgangslausrar færslu. Fyrir nú utan það að ég held að fáar konur á tíræðisaldri haldi uppi bloggsíðu. En það er nú annað mál.

Lísa systir kom færandi hendi hingað í kvöld, hún var að koma úr Ameríkuflugi og verslaði handa litla frænda sínum eins og hennar er von og vísa. Sá stutti var auðvitað hæst ánægður með þetta og eyddi lunganum úr kvöldinu í það að spila fiskaspil við færnku sína og svindla all hressilega líka. Nauðsynlegt að læra að svindla þegar maður er orðinn þriggja ára...

Ég er búin að vera nokkuð löt og drusluleg undanfarna daga. Enda svosem kannski erfiðara að hugsa þegar heilinn er uppfullur af hori. Ég ætla allavega að skýla mér bara á bak við það í bili, takk fyrir.

En af því að ég er löt þá ætla ég að slá botninn í þessa færslu og leyfa mér að segja það að ég nenni ekki að skrifa meira. Svo er ég líka orðin þreytt en nenni ekki að fara að sofa. Góð stemning á heimilinu í kvöld.

3 Comments:

At November 09, 2006 4:14 AM, Anonymous Anonymous said...

Það var algert æði að spila við hann Ísak, sérstaklega þar sem hann var alveg rosalega spenntur og æstur við þetta spil. Gott hjá honum að svindla, sérstaklega fannst mér flott þegar hann stal öllum fiskunum sem ég var búin að veiða.
Alltaf gaman að missa sig í að kaupa eitthvað handa honum sæta mínum.
Lísa

 
At November 09, 2006 9:21 AM, Blogger Eygló said...

Hahah já hann er alveg í skýjunum og búinn að finna nýja svindl-aðferð sem er sko alveg laus við það að vera lúmsk ;)Hann sýnir þér það örugglega seinna! Hér var vaknað í morgun og farið í fiskaspilið á meðan foreldrarnir græjuðu sig til og nú eru allir á heimilinu með þetta athyglisverða lag á heilanum!!

 
At November 10, 2006 2:30 PM, Anonymous Anonymous said...

LOL sorry....gerði mér enga grein fyrir að það væri svona líka skemmtilegt lag með spilinu....hlakka til að sjá nýja svindlið, verst að maður getur ekki annað en leyft honum að svindla þegar hann er svona sætur....
Knús og kiss
Lísa

 

Post a Comment

<< Home