Langur tími og ekkert blogg..var einhver búinn að taka eftir því ? ;)
Það er ennþá alveg nóg að gera hjá mér og ég sé nú ekkert fyrir endann á því alveg strax. Það er samt allt í góðu gengi á heimilinu,við erum hress og kát.
Stubburinn er búinn í rörum og nefkirtlatöku og við fengum heyrandi barn til baka! Nú má ekkert segja því hann bergmálar það um leið, ferlega sniðugt. Ég get meira að segja talað við hann meðan við gögnum hlið við hlið- það var sko ekki hægt áður. Svo þetta er allt á réttri leið.
Annars var ég að drekka eplasafa áðan, sem er svosem ekkert í frásögur færandi nema það að þegar ég re búin með tvö glös sé ég að það er stærðar klessa innan á glasinu. Langar eiginlega ekkert að vita hvað þetta var.
In other news... nei ekkert fleira í bili


9 Comments:
ojjjj hvað ég vorkenni þér með klessuna sem var inni í glasinu....langar heldur ekki til að vita hvað það var.
En hugsum okkur bara að þetta sé prótein hi hi.
Shit ef Ísak er farinn að apa meira eftir manni en áður var, það er eins gott að ég passi minn stóra munn sem aldrei getur verið lokaður.
Love you
Lísa
haha já nú þurfa sko allir að vara sig, þetta er eins og að vera með risastóran páfagauk á heimilinu!!
Hef orðið vör við það, og sé að ég verð að fara að vara mig all verulega...því eins og flestir vita tala ég fyrst og hugsa svo.....ég lofa að fara að vanda mig svo Ísak verði ekki alveg jafn ódannaður og ég. Knús Læsa skvæsa
Hehehehe...hef ekki stórar áhyggjur af þér og þínum orðheppna munni ;)
æjæj ekki gott að vera að gæða sér á dýrindis eplasafa og finna þetta í glasinu *hrollur*
Annars þá gúgglaði ég þig og sá e-h verkefni sem þú gerðir í skólanum. (; svo kjúttlegt, Þú ert svo góður penni stelpa!! (:
luv, Gulla pulla
Ó mæ... allt er nú á netinu :S
Hey bara sætt að þú finnst á google....og það er alveg satt hjá Gullu að þú ert mega flottur penni. Það kom sko fullt upp þegar ég googlaði þig líka, en ég varð náttlega að prófa þetta líka.
Mér til vonbrigða eða kannski léttis kom ekkert upp þegar ég gúgglaði mig :o( ég er greinilega ekki mjög svo fréttnæm.
Knús í kless
Læs
Hahahaha já I´m all over the internet,baby! Sýnir bara hvað ég er mikill lúði ;)
Þú ert sko EKKI lúði og aldrei segja þetta. Mér finnst þú ÆÐI og það er engin skömm að því að finnst á netinu.
Lov jú
Lísa
Post a Comment
<< Home