Army of me

Thursday, October 12, 2006

What a day!!

Í dag er ég búin að :

*Taka upp heilt verkefni í hópvinnu á diktafón með spólu sem virkaði svo ekki (já..pirrandi!)

*Uppgötva að verkefnið sem ég kláraði fyrir 2 vikum og á að skila á mánudaginn, var vitlaust! Svo ég þurfti að byrja upp á nýtt... (já..líka pirrandi).

*Dreifa hveiti um allt eldhúsið.

*Búa til kekkjótta karrýsósu.

*Þurrka hor og tár.

*Lesa Einar Áskel í hundraðasta sinn.

*Baða lítinn kropp.

*Taka ísskápshilluna nokkrum sinnum í sundur..óvart í öll skiptin.

*Setja saman trélest.

*Grúfa mig yfir tölvuna í svartsýniskasti dauðans.

*Búa til minn fyrsta fjórfalda espresso-kaffibolla.

Eigið góða nótt... ég verð hér við skjáinn... kát eins og ævinlega.

3 Comments:

At October 13, 2006 1:42 AM, Anonymous Anonymous said...

Já þeir eru stundum strembnir hjá þér dagarnir elsku frænka! Þú ert samt snillingur í að láta þetta allt saman ganga upp :)
Hafðu það gott um helgina.
kveðja, Daldís.

 
At October 14, 2006 2:47 PM, Anonymous Anonymous said...

Hjálp! Þú ert eins og sprengjuflugvél á síðasta snúningi elsku dúllan mín. Mundu bara að við þurfum víst líka að sofa....

 
At October 25, 2006 2:50 AM, Anonymous Anonymous said...

Vá hvað ég dáist að þér! Ég væri örugglega steinrotuð á lyklaborðinu eða fyrir framan imban :)
Gangi þér sem allra best ...

kv.Ásta

 

Post a Comment

<< Home