kreivings..
Nú verð ég að fara að taka mig á... það er bara ræktin á mánudaginn, og bannað að guggna, Eygló peygló!
Að vísu hjálpar það til að ég á svo undarlega skólasystur. Hún borðaði aldrei appelsínur en elskar allt í einu appelsínur, tekur með sér grænmeti í poka í skólann og getur ekki fyrir sitt litla líf drukkið kók. Og ég tek það fram að hún var mega kókisti í denn. Já, svona fara þessi blessuðu börn með mann. Ég bíð bara eftir því að hún fari að fá"kreivings" í trén úti í garði, því náttúrulegra, því betra. Einhvern tíma heyrði ég að ef að óléttar konur borðuðu mikið af ávöxtum og grænmeti á meðgöngu, yrði barnið hárprútt. Ef að þetta er rétt, þá verður barnið hennar örugglega með hár niður á bak!
Æ þetta er allt svo krúttlegt! awwwww :) ég hlakka svo til að verða skáfrænka!
Ég er í sveitinni núna, fór í réttir í dag með stubinn og hann skemmti sér konunglega, fékk að keyra traktor (með hjálp að sjálfsögðu) og sitja á fjórhjóli, vera á kerrunni með öllum rollunum og ég veit ekki hvað og hvað.
En hafið þið heyrt rollu fá hnerrakast? Það hef ég..og mér fannst það ferlega skondið :)


10 Comments:
hehe já hef séð rollu fá hnerrikast, það er skondið. Knús úr baunalandi heiðdís
Bíddu bíddu - finnst eins og ég geti lesið út úr þessu að maría sé ólétt ???? eða er ég bara að rugla ? segðu mér segðu mér
Hehehehe Nína þú ert klár ;) bingó..
Hey er verið að tala um mig hérna :P tíhí...
hahahaha ég er greinilega ekkert rosalega klár að tala undir rós!! En það er svosem allt í lagi því þetta er ekki lengur leyndarmál- ég vissi þetta á undan ykkur öllum...nananabúbú!! ;)
montrass Eygló !!! :D:D
Þetta verður eitt loðið barn ef svona heldur áfram. Alveg ekta þú að spá í hnerra hjá rollu og ég sé þig líka alveg fyrir mér fá hláturskast út af því....
Love you
Lísa
hahaha já..og ég var nú svolítinn tíma að gera upp við mig hvort mér finndist rollan í hnerrakastinu og geðvonda rollan með reykingahóstann fyndnari! Hóstarollan nebbla hóstaði með opinn munninn og tunguna út...jiminn hvað þetta var FYNDIÐ!
Segðu vinkonu þinni að borða gulrætur ef hún vill að barnið fái brúna húð...þessvegan gúffa ég í mig gulrótum linnulaust!
kv
Gunnur
Ræktin já.... stingdu bara gat á smokkinn í kvöld og úbs...þú hættir að hafa matarlyst eftir x marga daga. Góð hugmynd eða hvað....? Spyrðu bara Maríu!
Kv.Adda
Post a Comment
<< Home