Army of me

Tuesday, November 07, 2006

Ég fékk vinsamlega ábendingu um það að það væri eitthvað lítið um að vera á blogginu mínu. Það er svosem alveg satt og rétt, enda heitir þetta ágætis blogg þankahríð andlausrar konu og er það ekki að ástæðulausu.

Hér á bæ er lítið um að vera, skólinn og vinnan og heimilið taka sinn toll svo að það er lítill tími afgangs til að sinna áhugamálum eða skemmtanalífi.

Mikið svakalega getur félagsfræðikennarinn rausað um allt og ekki neitt. Mig langar alltaf í nammi í félagsfræði því þá verð ég svo syfjuð og finnst mig vanta gleði og ánægju í líf mitt þessar 80 mínútur dagsins. Sem er svosem allt í lagi, ég ét þá bara nammi ef mig langar nammi. Ef ég stíg í rasskinnarnar einn góðan veðurdag þá verður bara að hafa það.

Talandi um rassa. Ég er að fara að reyna að vera virk í ræktinni aftur,svona á milli þess sem ég læri og vinn og geri eitthvað annað..ég fór í ræktina í gær og Ingibjörg bekkjarsystir lét mig gera killer magaæfingar og harðsperrurnar hafa aldeilis látið á sér kræla.

Síðustu helgi vorum við í sumarbústað. Það er svosem ekkert í frásögur færandi, en á leiðinni heim hellti ég eplasafa í klofið á mér..af hverju missi ég öll matvæli í klofið á mér??? Þetta hlýtur að vera Freudískt, svei mér þá.

Mig langar í klippingu. Mig langar í litun. Mig langar í megrun. Mig langar í föt. Mig langar að vera brún. Mig langar..mig langar...

Já ég er sko með ljótuna á háu stigi í dag.

9 Comments:

At November 07, 2006 3:47 AM, Anonymous Anonymous said...

ohhh Eygló mín það fer nú ekki mikið fyrir ljótunni hjá þér krúsí. Alltaf jafn sæt og góð hvað gengur á :*
En já þessi félagsfræðitími er orðinn frekar þreyttur *geysp*

 
At November 07, 2006 3:48 AM, Blogger Eygló said...

Já..kannski félagsfræðin eigi þátt í því að ljótan bankaði upp á hjá mér!!

 
At November 07, 2006 5:07 AM, Anonymous Anonymous said...

Þú ert alltaf falleg og sæt Eygló mín en spurning af hverju allt sækir í klofið á þér......
Þoli ekki þessa félagsfræðitíma.

 
At November 07, 2006 10:48 AM, Blogger Eygló said...

Held að það fallegasta sem ég get sagt um félagsfræðitímana sé að þeir séu fullkomin tímasóun...

 
At November 07, 2006 11:29 AM, Anonymous Anonymous said...

Hnuss hlusta ekki á þetta, þú ert besta fallegast og frábærasta systir sem hugsast getur. En er ekki vert að skoð hvers vegna þetta er alltaf eplasafi sem eitthvað herjar á þig????? Kannksi svona um leið og tengingin við klofið er rannsökuð hehehe.
Þú ert alltaf sæt....mundu það.
Love you to pieces.
Þín alltaf, Lísa
p.s. ég veit hvernig er að vera með stóran rass, og þú átt LAAAAAANGT í land.

 
At November 08, 2006 5:09 AM, Anonymous Anonymous said...

Sammála síðasta ræðumanni. Mér finnst þú alltaf æði! Hvernig verður svo prófatörnin hjá þér? Væri gaman að koma á eins og einu frænkukvöldi fyrir jól, svona ungliðahreyfingunni allavega ;)
kveðja, Daldís.

 
At November 08, 2006 4:44 PM, Blogger Eygló said...

Hahahahaha ohh já það gæti sko verið gaman! :) Prófatörninni lýkur 11.des, ég verð viðræðuhæf eftir þann dag vona ég. Að vísu fer ég að vinna á fullu en það má alltaf finna smá flöt fyrir frænkukvöld ungliðahreyfingunnar, hvort sem það verður í formi saumaklúbbs eða einhvers fjörugra:D

 
At November 09, 2006 4:09 AM, Anonymous Anonymous said...

Hæ já ég varð að svara þessu. Ég er sko alveg til í að hafa eins og eitt frænkukvöldi....ég er einmitt búin í prófum líka þann 11.des. Ein sem gerir þetta akkúrat í öfugri röð. Ferðast fyrst, lærir svo...byrjar í sambúð og ákveður svo að vera single á gamals aldrei muahahahhaha...um að gera að vera öðruvísi.
En endilega plönum eitt ungliða-frænkukvöld.
Knús knæs
Lísa

 
At November 15, 2006 3:56 AM, Anonymous Anonymous said...

Iss piss .. þú átt nú þó nokkuð mörg súkkulaðistykki eftir til að það sé fræðilegur möguleiki á að þú náir að stíga á rasskinnarnar á þér ;) Og ef maður er alltaf að neita sér um eitthvað er þá lífið nokkuð skemmtilegt? :P

En skil þig vel með að langa og langa og langa ;)

kv.Ásta

 

Post a Comment

<< Home