Módelblóð í æðum ? Tæplega..

Jólagjöfin til foreldra okkar hitti alveg í mark. Ekkert smá gaman þegar maður sér alveg greinilega að maður gaf eitthvað sem hitti í mark. Við systurnar fórum nefnilega saman í myndatöku fyrir jólin og færðum foreldrum okkar albúm með myndunum í jólagjöf. Merkilegt nokk þá voru myndirnar alveg ágætar þrátt fyrir að við værum eins og gínur í myndatökunni að sögn systur minnar! Já módelgenið er ekki öllum gefið, og við systur komumst að því að við erum ekki efni í næsta America´s next top model ef marka má hugmyndaleysið og stirðleikann í myndatökunni. Þetta var samt hörkugaman og það er fyrir mestu.



5 Comments:
Flottar myndir Eygló mín. En hvernig er það með þig og msn? Endilega komdu inn á það seint í kvöld, ég verð þá þar. Knús, Adda
sætar systur. jólaknús heiðdís.dk
Vá, svakalega eruð þið sniðugar systurnar. Og þetta eru æðislegar myndir af ykkur. Sýnist þið alveg geta skráð ykkur í american next top model :D
Haahahaha já það er alveg næst á dagskrá sko ;) noooot
Engin furða að þetta hafi hitt í mark. Flottar myndir og sætar systur :D
-Oddný
Post a Comment
<< Home