Army of me

Monday, January 01, 2007

Kaffi latte-gallabuxur

Ég er búin að hafa það gott í sveitinni með feðgunum mínum. Á milli jóla og nýárs skruppum við samt aðeins í bæinn og sinntum erindum og fórum í afmæli til sætu ömmu Guggu.

Við skelltum okkur á kaffihús í örlagaríkri Kringluferð. Í stuttu máli sagt endaði risastór Kaffi latte í kjöltunni á mér svo ég varð að tipla niður í Zöru á hæðinni fyrir neðan og versla mér buxur í snarhasti. Ég var ansi lúpuleg þar sem ég gekk inn í búðina, rennandi blaut niður að hnjám og reyndi að skýla stærstu slettunum með töskunni minni. Eftir að hafa snarað mér í buxur, þurfti ég að rölta fram og segja afgreiðslustúlkunni þessa mjög svo absúrd sögu mína.

Það fór svo að ég þurfti að hitta afgreiðslustúlkuna inni í mátunarklefa (ekkert klúrt sko) þar sem hún fjarlægði þjófavörnina af mér. Svo klippti hún miðann af buxunum þar sem ég stóð fremst í röðinni frammi í búð. Það voru ansi mörg augu sem hvíldu á mér á þeim tímapunkti, skal ég segja ykkur. Enda kannski ekkert svakalega skrýtið svosem..

Annars er allt við það sama, ofát og leti og afslöppun. Við erum komin heim í kotið. Voða gott að koma heim þó það hafi verið gott að vera í sveitinni líka.

4 Comments:

At January 02, 2007 11:56 AM, Anonymous Anonymous said...

Hahahaha þú ert alveg snillingur Eygló mín. Ég er búin að vera lesa færslurnar þínar og er gjörsamlega í kasti;) En gleðilegt ár annars og voandi áttiru góð áramót:)
kv.
Fanney

 
At January 02, 2007 6:25 PM, Anonymous Anonymous said...

Hver annar fer á kaffihús í Kringlunni og endar með kaffi Latte í kjöltunni? Hahaha, þú er algjörlega yndisleg og ert ómissandi krydd í þessum heimi. Eigðu gott frí engillinn minn. Kveðja, Adda

 
At January 05, 2007 1:07 AM, Anonymous Anonymous said...

Hehehe ... Þú ert yndi! Sé þig svo í anda í Kringlunni :) thíhí

 
At January 10, 2007 9:08 AM, Blogger Linda said...

LOL

Þú ert æði :D

 

Post a Comment

<< Home