Fyrsta vika á vettvangi var bara nokkuð ljúf. Yndislegt starfsfólk og frábær börn og besti æfingakennari sem hægt er að hugsa sér. Það er búið að vera nóg að gera þar sem ég hef sinnt barni og veikum eiginmanni. Kallinn lá í flensu alla síðustu viku og var hálf bjargarlaus af þeim sökum. Við höfðum fyrirhugað að fara út að borða en því var vitanlega slegið á frest. Planið var að fara út að borða þessa helgina, semsagt í gær.
Það vildi þó ekki betur til en svo að ég þurfti endilega að veikjast um leið og ég kom heim úr leikskólanum á föstudaginn. Ég er búin að vera eins og drusla (meiri drusla en vanalega) alla helgina og með svo mikinn hita að ég hef ekki getað lesið á tölvuskjá með góðu móti, hvað þá meir. Komin aftur úr með öll verkefni og eiginlega með allt niður um mig. Bömmer..en þetta hlýtur að reddast einhvern veginn. Svo er bara spurning hvenær litli strumpur tekur við!
Annars er allt með kyrrum kjörum í kotinu, kallinn dottar í sófanum (útkeyrður eftir að hafa verið að þjónusta mig..hahaha) og sá stutti er hjá ömmu sinni og afa á Selfossi. Ég sit hér, eins ógirnileg og hægt er að vera og er að reyna að hressa mig við. Komin með leið á því að liggja út af!


2 Comments:
Knús til þín lasarus! Láttu þér batna sem fyrst svo þú getir farið að bretta upp ermar fyrir verkefnin...
öss.... það er nú í góðu lagi að ná sér eftir pestina... ekki eins og maður sé að missa allt niður um sig dúlla *knús* Þú ert svo mikil hetja tekur þetta á hælinn :D
Post a Comment
<< Home