Áttavillt
Nú er alltaf talað um þetta típíska tímabil á unglingsárunum þegar fólk er að leita að sjálfu sér. Þetta er talinn eðlilegasti hlutur í heimi og ég ætla ekkert að rengja það.
En þegar kona á 27. ári (omg!) er ennþá áttavillt ? Fellur það líka undir sama hatt og flokkast þar af leiðandi sem fullkomlega eðlilegur hlutur ? Ég ætla að leyfa mér að efast um það.
Og hvernig veit maður líka hvort maður er á réttri hillu ? Og hvernig í ósköpunum á maður að vita hvað maður vill? Garg hvað þetta er asnalegt. Já ég sagði GARG og ég meina það.


1 Comments:
Skil þig svoooo vel!
Post a Comment
<< Home