Ég er byrjuð í snilldar valáfanga. Hann er kenndur á laugardögum, sem er allt í lagi. Fínt að hressa sig svolítið við. Reyndar var ég alveg dauð úr þreytu síðast eftir allt fjörið. Við erum semsagt að læra um gildi leikja og hvernig færa megi leikinn inn í kennslu og skólastarf. Síðasta laugardag fórum við í fullt af leikjum, inni sem úti. Ég hafði svolítið gott af þessu þar sem ég þekkti engan í mínum hluta bekkjarins (skipt eftir stafrófsröð eins og alltaf...). Það var visst challence að sitja í fanginu á ókunnugu fólki og garga framan í það og svoleiðis..!
Fyrsti dagur á vettvangi var í dag. 7 vikur í fjörinu framundan. Ég var að skíta hjartanu í morgun (held reyndar að það sé ekki hægt en ef það væri hægt þá hefði ég örugglega skitið því). Byrjaði á því að villast og þurfti að hringja og spyrja til vegar. Nörd. Svo fór ég inn á vitlausa deild. Úff...meira nörd. Einn lítill sætur strákur uppástóð það að ég þyrfti að læra að skamma..þess vegna væri ég komin í heimsókn á leikskólann! Hehehehe.. engin ástæða til að skamma, þetta eru svo prúð og dugleg börn ;)
Ég er samt dauð úr þreytu eftir daginn. Komin úr æfingu, ekki alveg nógu góð í því að hlusta á mörg gjammandi börn tala við mig í einu..hehehe


4 Comments:
húff ég skil nú ekki hvernig leikskólakennarar venjast þessum sífella hávaða, man eftir þegar ég byrjaði að vinna á leikskóla í denn að ég var margar vikur þannig að ég sofnaði eftir vinnu, gerði svo eitthvað ef ég gat á kvöldin og svaf svo alltaf eins lengi og ég gat, blessuð börnin sugu í sig orkuna mína, en reyndar vandist þetta sérstaklega eftir að maður fór að þekkja börnin og svona, þá þurftu ekki allir að tala við mann í einu... hehe. gangi þér vel og vonandi verða börnin góð við þig;) kv heiðdís
This comment has been removed by a blog administrator.
This comment has been removed by the author.
Þú verður frábær eins og þú ert alltaf í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur. Skárra að rata ekki á kaffistofuna heldur en að standa með bleyju og vita ekki hvað er fram og aftur á henni og pakka svon barninu inn þannig að typpið er upp, sem verður til þess að næstu bleyjuskipti verða ekki eins skemmtileg...been there done that!!!
Til hamingju með að vera komin í kórinn, vænti einsöngs frá þér fljótlega.
Love you always
Lísa
Post a Comment
<< Home