Já eitt og annað
Já ég er risin úr rekkju og kem því til með að mæta hraust en ekki veik til vettvangsnáms á morgun. Það verður fín tilbreyting. Hér á heimilinu geng ég undir nafninu ,,Pensilína" - gasalega lekkert en hæfir mér þó vel miðað við pensilínlyktina þegar ég kasta af mér vatni eða svo mikið sem ropa, þó settlega og dömulega sé.
Hér er ýmislegt verið að bralla, verkefnin bíða mín í hrönnum og annað verkefni sem ég segi ykkur frá seinna með tíð og tíma. Eða bara alls ekki, það fer allt eftir því hversu duglegt fólk verður að kvitta á næstu dögum eða vikum. Annars verð ég nú að segja að ég hef aldrei fengið svona mörg komment á jafn tilgangslausa færslu eins og þarna um daginn um gæjann í Vörutorgi.
Ég er á leiðinni út núna að ná í litla grísinn minn. Systir mín ætlar að koma með og borða nammi í bílnum með mér, mér til samlætis svo ég deyji ekki úr leiðindum á leiðinni.
Ég er búin að læsa albúmi og vefdagbók litla pjakks, hef engan áhuga á því að barnaperrar séu að skoða myndirnar af honum. Ekki vera feimin við að biðja mig um lykilorðið, allir sem þekkja okkur mega kíkja ;)
Hafið það gott og lærið ekki yfir ykkur, þið sem eruð í þeim pakkanum


6 Comments:
haha þekki þetta með pensillínið...
Sko engin hætta á að ég læri yfir mig svo mikið er víst bööööö.
Já takk fyrir rúntinn essskan. Nú situr maður með myndarlega Hómer Simpson bumbu eftir allt sælgætið og er nánast ómótt við tilhugsunina um að fleiri sætindi fari inn fyrir mínar varir...*gubb* verst er að þessi tilfinning rennur svo fljótt af manni.
Note to self...muna að tyggja ekki froska í gríð og erg þegar Ísak er með í bílunum tíhí.
Knús
Lísa
hehehe nei það endar með því að það þarf að stinga tyggjói upp í krakkann... by the way..nice save ;)
phewwwww já þetta rétt slapp fyrir horn með tyggjóið...p.s. sé núna eftir að hafa ekki tekið afganginn af froskunum með mér heim muahahhaha..
Knús
Lísa Hómer Simpson
heyrðu, hvað meinarðu með annað verkefni ? Það er bara eitt sem mér dettur í hug ;).
Hehehehe Linda, ég er ekki ólétt ;) So guess again
Post a Comment
<< Home