Mér tókst að vera pensilínlaus í tvo daga áður en ég lagðist aftur í bælið með bullandi streptókokka og fékk því sterkari pensilínskammt. Þeir sem neyðast til að umgangast mig næstu daga verða því að sætta sig við áframhaldandi pensilínpiss og pensilínropa. Gaman að því.
Ég er komin í sveitina núna. Keyrði austur með símalandi unga aftur í og sneri mig úr axlarlið við að rétta svala aftur fyrir og fram fyrir sætið með reglulegu millibili.
Nóg af lærdómi hrúgast yfir mig. Hleðst raunar upp þar sem skipulagsleysi og eirðarleysi einkennir undanfarna daga. Ætli það sé lægð yfir landinu ?
Að lokum langar mig að kúka pínulítið á kerfið. Okkur hefur verið tjáð að sonur okkar þurfi mikla hjálp með málþroskann sökum heyrnarleysisins sem loðir við eyrnavesenið. Hann þarf tíma einu sinni í viku en vegna anna kemst hann ekki að. Við biðum í ár og komum honum þá að hjá talmeinafræðingi. Við höfum beðið í 3 vikur núna og þurfum að bíða í tvær í viðbót eftir næsta tíma.
Það er árs bið eftir öðrum talmeinafræðingi. Sweet.
Við eigum ekki heimilislækni. Hins vegar erum við á biðlista eftir slíkum. Það er svosem ekkert merkilegt nema fyrir það að við erum búin að vera á þessum biðlista síðan sumarið 2003.
Mér finnst við bíða svolítið mikið!


7 Comments:
Já sorglegt en satt þá virkar kerfið okkar vel þar til við þurfum á því að halda!
Hafðu það gott í sveitasælunni skvísa og láttu þér batna.
kv.Ásta
Prump á þetta kerfi. En sem betur fer stoppar þetta ekki ljósgeislann í að mala non-stop, bara sætt.
Já nú er bara að taka pensilínið á hælinn.
knús
Lísa
Já, þetta er nú meira ástandið. Ég hvet þig til að gefast ekki upp og vera óþolandi þangað til þú færð tíma fyrir drenginn.
Stundum þarf maður að leggja sig 200% fram til að fá eitthverju áorkað. Knús til þín...
Þetta er allt í lagi, ég kem heim eftir 3 ár og bjarga öllu!
En svona án gríns þá er þetta fáránlegt system á Íslandi, hérna í Danmörku halda þau að þau hafi það slæmt en þau missa andlitið þegar vð segjum þeim hvernig þetta gngur fyrir sig á Íslandinu góða.
Já skil þig Anna, þetta er til háborinnar skammar *hnuss*
Já ég bíð bara í 3 ár eftir þér..híhíhí :)
Mig er búið að langa til að skipta um heimilislækni í mööörg ár þar sem minn er orðinn jafn gamall Þingvöllum :S En sökum skorts þá hef ég ekki langt í það ennþá... Skil þig því svoo vel, en samt máttu alveg fá minn lánaðann hann er ágætur þegar hann þarf ekki að skrifa kennitölur, það voru bara 8 stafir í minni kennitölu á síðasta lyfseðli :S ...
En láttu þér batna krús og sjáumst allavega á fimmtudaginn í keilumótinu, ætli ég verði ekki bara í klappstýru hlutverkinu þetta árið... verð sko pottþétt með næst þegar þig verjið titilinn í annað skiptið :D:D
Já María þú mætir og leiðbeinir mér, ég lít á þig sem minn persónulega þjálfara ;)
Hehe fyndnir svona gamlir kallar í starfi..gamli presturinn heima fermdi mig rétt áður en hann fór á eftirlaun og það var skrautleg ferming skal ég segja þér ;)
Post a Comment
<< Home