Bullumsull
Það eru smáu hlutirnir sem gera lífið svo skemmtilegt
Í gær til dæmis fylgdist ég með tveimur miðaldra konum leggja
samtímis í stæði. Þetta tók ansi langan tíma og að lokum bakkaði önnur þeirra á ruslagám. Svona löturhægt og nuddaði bílrassinum smekklega upp við ryðgaðan gáminn *áts*. Annað hvort tók konan samt ekki eftir því eða þá að hún hefur skammast sín of mikið til að sýna viðbrögð því hún gekk út úr bílnum ansi brött bara.
Svo skilaði ég verkefni í dag...ahhh..alltaf gott að losna við verkefni! Ég fékk tvö yfirfarin til baka og gekk bara fínt með þau. Vona að það gangi þannig áfram.
Svo er að koma vor. Þó það sé reyndar skítakuldi og snjór eða slydda til skiptis. Það skiptir ekki máli ef það er sól í hjartanu ;) Smá væmni í tilefni dagsins.
Ég er að fara að skella mér út eftir smá stund til að kíkja á kóræfingu. Kórinn minn er sko sá krúttlegasti held ég bara! Þeim finnst allt fyndið, og þá sérstaklega ef það eru fimmaurabrandarar. Enginn að taka sig of hátíðlega og allir að gera sér far um að vera indælir. Það eru til dæmis alltaf allir að hjálpa mér með nóturnar sem eru út um allt í óskipulögðu möppunni minni. Í síðustu messu hvíslaðu þær sem stóðu við hliðina á mér alltaf að mér hvaða sálmur kæmi næst..sem kemur sér mjög vel þegar maður sér ekki á númerin á messutöflunni. Það hefur örugglega verið fínt fyrir messugesti að fylgjast með nýliðanum í kórnum sem vissi hvorki í þennan heim né annan...
Framundan er verkefnavinna og meiri verkefnavinna. Sér eiginlega ekki fyrir endann á þessum verkefnum. En ég er staðráðin í því að halda í bjartsýnina og jákvæðnina, það gengur allt svo mikið betur þegar maður gerir það. Þetta kemur allt með kalda vatninu..
Eða eins og sannur íslendingur myndi segja : ,,ÞETTA REDDAST!"


4 Comments:
TIl haningju með verkefnin þín og til hamingju með kallinn þinn hann var hinn gáfulegasti í útvarpinu eins og við var að búast, þið eruð bæði alveg hreint ágæt.
ástarkveðja
mamma
Hehe, já kórinn er góður og sérstaklega þegar Kjartan tekur að kasta fram vísu. Þú ert sko meira en velkomin í þennan kór elskan, enda ertu yndisleg hvar sem þú kemur. Kys og kram, Adda
Já þetta reddast allt saman, það er bannað að hugsa og halda annað. Og ef ekki þá var það sko ekki manni sjálfum um að kenna *fliss*.
Verð að finna kallinn á netinu núna og heyra gáfumennið sjálft í tali.
knús í klessu
Lísa
Gott hjá þér að drífa þig í kór,áreiðanlega voða gaman fyrir þá sem geta sungið hehe.Sonur þinn hefur sem sagt ekki sagt við þig eins og dóttir mín gerði þegar hún var svona 4-5 ára og ég var að syngja fyrir hana "ég skal bara synga mamma" humm skildi svo sem allveg sneiðina. En skilaðu kveðju til Antons, kom rosa fínnt út hjá honum viðtalið.kv.Heiða Björg.
Post a Comment
<< Home