Army of me

Friday, March 23, 2007

Það er kominn hóll

Ég missti sjónar á jákvæðninni í gær og er bara búin að vera hundleiðinleg síðan þá. Ef einhver rekst á jákvæðni í óskilum þá á ég hana örugglega.

En svona er bara lífið, það eru ekki alltaf jólin, stundum kemur hóll. Það sagði allavega þýskukennarinn minn í gamla daga þegar við kvörtuðum undan leiðinlegum ritgerðum og skyndiprófum. Held að þessi merki maður hafi alveg hitt naglann á höfuðið. Núna eru jólin búin og kominn tími til að klöngrast upp á hólinn. Bara best að vera ekki í stuttu pilsi á meðan.

Það er allt á fullu og margt í gangi í hverju horni og því þarf að sinna. Þannig er það bara. Það er samt allt í lagi að hafa nóg að gera, gerir manni bara gott.

Góða helgi, dúfurnar mínar

2 Comments:

At March 23, 2007 9:25 AM, Anonymous Anonymous said...

Já, lífið gengur víst upp og niður en ég vona nú samt að það gangi meira upp hjá þér. Mundu bara að ef engir slæmir tímar væru, væru engir góðir tímar heldur því hver væri samanburðurinn þá?
Góða helgi min kæra

 
At March 25, 2007 4:05 PM, Anonymous Anonymous said...

Já þetta er törn sem maður verður víst að takast á við og svo þegar henni er lokið er maður svo ósköp fegin og hugsar tilbaka hvers vegna var ég að æsa mig yfir þessu, þetta tók svo skjótt af hehe.
Er fyrst að lesa núna, þess vegna skrifa ég svona seint comment.
Knús og kossar og takk fyrir daginn í dag.
Lísa

 

Post a Comment

<< Home