Hmm það er greinilegt að það fellur ekki í góðan jarðveg að blogga þegar lundin er ekki létt ef marka má fjölda kommenta við síðustu færslu..hehe. Annars skiptir það svosem ekki máli, ég bara blogga ánægjunnar vegna og kommentin eru bara skemmtilegur plús.
Ég er búin að sitja allan seinnipart dags og allt kvöldið og hluta nætur (klukkan er hálf þrjú núna) við að skrifa verkefni með vælutónlistina mína í eyrunum. Voða gott að hlusta stundum á svolítið sykurhúðaða vellu. Ég er að hugsa um að vera bara áfram í væmnu skapi út vikuna, það hentar hvort eð er ágætlega þar sem það er leynivinaleikur í næstu viku í skólanum. Kemur sér örugglega vel að vera væminn þar.
En svo verður leynivinapartý um næstu helgi. Þá ætla ég sko ekki að vera væmin lengur!


3 Comments:
Já, skrýtið að fólk skuli ekki nenna að kommenta nema maður sé uppi undir lofti af tómri gleði. Það vita það nú sennilega flestir að það koma alltaf gráir dagar og ef vinir manns geta ekki staðið með manni í blíðu jafnt sem stríðu, þá eru þetta bara ekkert góðir vinir! Og hana nú (sagði hænan og lagðist á bakið hehe)
Jæja ég commenta og ekki vegna þess að ég varð fúl út af seinustu færslu, heldur einfaldlega vegna þess að ég er ekki alltaf við tölvuna til að lesa hvort það er eitthvað nýtt komið á netið. Maður tekur sér stundum frí og það gerðist einmitt þessa helgina.
En þú mátt alveg vera væmin eða í vondu skapi....ég held samt áfram að setja inn comment, og ég er alveg vinkona þín þó ég hafi ekki skrifað strax.
Takk enn og aftur fyrir samveruna sæta mín og þú ert alveg hörkudugleg að standa skil á þínum verkefnum.
Knús og kossar í klessu
Lísa
Sorry en eins og þú veist sest ég eiginglega aldrei við tölvuna um helgar bara í vinnunni hihi.En það væri nú bara lítið gamana að þessu öllu ef brautin væri alltaf bein. Stundum verða að vera beigjur,hólar og hæðir til þess að við tökum eftir hvað beini vegurinn er dásamlegur :)
Þín kænka.
Post a Comment
<< Home