Army of me

Thursday, March 29, 2007

Ég fór á fund í dag og labbaði heim. Það var frábært..ég skrúfaði ipodinn í botn og gekk eins og byssubrennd alla leiðina heim í léttri rigningu. Það var svolítið eins og í lélegu myndbandi þegar ég gekk undir götótta þakrennu og fékk nokkra risavaxna dropa á vinstri öxlina. Sá fyrir mér svona rómantískt myndband, svarthvítt..og rauðar rósir það eina í lit. Don´t ask me why :S

Þetta rómantíska og hádramatíska myndband sem ég bjó til í kollinum passaði þó engan veginn við brjálæðislega tónlistina sem gargaði inn í eyrað á mér.

3 Comments:

At March 30, 2007 6:51 AM, Anonymous Anonymous said...

Ég sé þetta líka alveg fyrir mér. Fyndið hvað hugurinn getur farið á flug þegar maður er úti að labba og einangaraður með tónlistina. Verst er þegar maður byrjar að labba í takt við tónlinstina...tíhíhí....
Love you
Lísa

 
At March 30, 2007 7:17 AM, Anonymous Anonymous said...

Gvööööööööööð ég bara varð að kvitta aftur þegar ég sá hvað það voru margar ásláttarvillur í seinasta kvitti hjá mér, shit lítur ekki vel út.
En ég er ekki svona illa gefin, bara aðeins of fljótfær á lyklaborðið.
Knús
Lísa

 
At March 30, 2007 11:25 AM, Blogger Unknown said...

Dugleg ertu. Hlakka til að sjá þig í kvöld. Knús, Adda

 

Post a Comment

<< Home