Army of me

Tuesday, May 22, 2007

Komin aftur

Jæja góðir hálsar, þá er ég komin aftur til manna, eða svona nokkurn veginn.

Ég veiktist og var lögð inn á spítala og hef legið þar í 6 vikur. Í gær komst ég loksins í svokallaðan dagstatus svo nú má ég lúlla heima en er á spítalanum yfir daginn. Næsta skref er svo útskrift og það gæti alveg farið að koma að því.

Já svona er það bara, stundum bara getur maður ekki meira. Ég var sennilega að vasast í of mörgu svo að á endanum hlaut eitthvað að gefa sig. Ég er á batavegi og farið að líða betur með góðri aðstoð frá fólki sem er svo sannarlega starfi sínu vaxið.

Í þessu ferli hef ég svo sannarlega fengið að finna fyrir því hvað ég á góða að, bæði ættingja og vini. Mig langar að þakka kærlega fyrir öll knúsin, kveðjurnar, gjafirnar og stuðninginn undanfarnar vikur.

Hins vegar gætu einhverjir hugsanlega hafa ákveðið að snúa við mér baki og þá er það bara eitthvað sem ég þarf að takast á við.

En í öðrum og aðeins hressilegri fréttum, þá er ljóðabókin mín loksins komin út og er fáanleg hér hjá mér:) Hún kostar 2000 kr þar sem fjárhæðin fer beint til bókaforlagsins-maður verður víst að selja upp í kostnað ;) Ef þið viljið kaupa bók (plíís..hehe) hafið þá endilega samband við mig í meilinn minn eða í gemsann, vil ekki blasta númerinu hér á blogginu.

Góðar stundir, dúfurnar mínar og munið að knúsa hvert annað og spreða ekki óþarfa orku í neikvæðar hugsanir.

Eygló

22 Comments:

At May 22, 2007 12:05 PM, Blogger Hrafnhildur said...

Velkomin til baka! Gangi þér vel í því sem framundan er.
Stórt knús frá Svíþjóð
Habba Tinnusystir
ps ég kaupi gjarnan ljóðabókina þína, sendi Tinnu í sendiferð einhvern daginn.

 
At May 22, 2007 12:33 PM, Anonymous Anonymous said...

Velkomin heim ljúfust!
Ég er búin að vera hjá Höbbu systur í tæpa viku, kem heim á morgun og hlakka til að sjá þig...og ljóðabókina! :-)
Knús..
Tinna

 
At May 22, 2007 2:29 PM, Anonymous Anonymous said...

sæt siða kiktu a folk.is/animals_lover kv iris striðni puki sem var með þer a deild

 
At May 22, 2007 2:49 PM, Anonymous Anonymous said...

Ohhh það er svo gott að vera búin að fá þig heim elskan mín. Erum búnar að eiga góðar stundir, og heldur betur búnar að þjálfa upp spila og kapal hæfileikana.
Love you much much og mikið.
Þín sis Lísa

 
At May 22, 2007 5:00 PM, Anonymous Anonymous said...

Ohh geggjað að þú ert komin heim í heiðardalinn :D Hlakka til að geta droppað inn hjá þér og við getum fengið okkur ópal og kók og prumpað á svölunum... hehehehe þe. þegar Anton er með lokaðann gluggann :P
Pant fá eitt stykki ljóðabók.
Knús allan hringinn.
María ruslaprumpa :):*

 
At May 23, 2007 4:29 AM, Anonymous Anonymous said...

Gott að heyra frá þér skvísa :) Og að þú sért á batavegi. Gangi þér vel.

Ásta

 
At May 23, 2007 6:03 AM, Anonymous Anonymous said...

Velkomin heim elsku dúllan mín,verðum nú að halda við spilamennskunni þó þú sért komin heim, þá bara í Álfatmýrinni eða þá í Mosgerðinu. Nú heldurðu bara áfram á beinu brautinni með aðstoð okkar allra,sem elskum þig svo mikið kær kveðja,þín kænka

 
At May 23, 2007 2:42 PM, Anonymous Anonymous said...

Elsku Eygló :) mikið er gott að heyra frá þér og vita að allt sé á batavegi :) Gangi þér allt í haginn og við verðum svo að fara að heyrast/hittast
kv. Nína

 
At May 24, 2007 10:10 AM, Anonymous Anonymous said...

Elsku kelling.
Ljótt er að heyra að þú hafir legið spítalavist. En gott er að heyra að þú sért á batavegi.
Vonandi gengur þér vel og gleðilega útskrift. Svo gætum við nú litið framan í smettið á hvor annarri - ég sem rúlla barnavagni fram ´hjá blokkinni þinni nokkrum sinnum í viku.
kv
Gunnur

 
At May 24, 2007 12:53 PM, Anonymous Anonymous said...

gott að heyra frá þér aftur. Splæsi í ljóðabók eftir mánaðarmót;)

 
At May 24, 2007 3:33 PM, Blogger Eygló said...

Já Gunnur, endilega! Ég verð heima í veikindaleyfi eins og aumingi og auðnuleysingi í sumar svo endilega kíktu á mig og leyfðu mér að knúsa prinsinn þinn :)

 
At May 24, 2007 3:35 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæ dúllan mín, gott að sjá þig aftur skrifa hérna inn.....og þú ert orðin hressari... nú förum við nú kannski að láta verða að því að hittast hehehe.. og leyfa gaurunum að leika.
Love you og sjáumst fljótt... já og ég ætla audda líka að fá hjá þér eitt stk. ljóðabók bráðlega... ég má nú ekki missa af neinu sko hehe.
Knús Helga

 
At May 25, 2007 1:01 PM, Anonymous Anonymous said...

Frábært að heyra að þér líður betur! Hafðu það gott og skemmtilegt í allt sumar! Kys og kram! :*

 
At May 25, 2007 6:49 PM, Blogger Eygló said...

Æ takk stelpur :) svo sætar allar saman!

Já Helga, um að gera að hittast og leyfa gaurunum að góla og tæta í kór..pant koma í heimsókn til þín..muhahahaha.. nei djók ! ;) Og já, endilega verslaðu þér ljóðabók, líst fjandi vel á þá hugmynd skohh. Og Ingibjörg líka, eftir mánaðarmót ;)

 
At May 25, 2007 6:51 PM, Blogger Eygló said...

Æ takk stelpur :) svo sætar allar saman!

Já Helga, um að gera að hittast og leyfa gaurunum að góla og tæta í kór..pant koma í heimsókn til þín..muhahahaha.. nei djók ! ;) Og já, endilega verslaðu þér ljóðabók, líst fjandi vel á þá hugmynd skohh. Og Ingibjörg líka, eftir mánaðarmót ;)

 
At May 26, 2007 2:27 PM, Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir síðast Eygló mín, best í heimi að þú skulir vera að ná bata, mundu að ég elska þig alltaf besta frænka <3 híhí, knús og kossar Hugrún :)

 
At May 27, 2007 10:12 AM, Anonymous Anonymous said...

Velkomin aftur! Var farin ad hafa áhyggjur og svo varstu barasta á spítala, húff! Knús í tætlur sætasta snúllan mín og vonandi batnar þér fljótt. Knús á línuna frá Danmörku:-)

 
At May 27, 2007 1:56 PM, Anonymous Anonymous said...

Velkomin heim Eygló mín, gaman að heyra að þér sé farið að líða betur. Vonandi hittumst við eitthvað í sumar.

Farðu vel með þig
Sigga Anna

p.s. til hamingju með ljóðabókina ;)

 
At May 28, 2007 10:21 AM, Anonymous Anonymous said...

Hæ elsku Eygló mín og frábært að heyra að þú sért á batavegi.
Gangi þér allt í haginn og eigðu gleðilegt sumar :)

 
At May 28, 2007 2:30 PM, Anonymous Anonymous said...

Halló snúllan mín. Gangi þér vel í sumar dúllan mín. Ef þú átt leið um á Selfossi langar mig að fá að knúsa ÞIG og guttann þinn. Ég vil líka mjög gjarnan fá bók hjá þér. Hvernig fer maður að? fæ ég reiknisnr til að leggja inn á or what (:
Anyways, hafðu það gott og knúúúúús og koss frá mér.

þín Joros vinkonos..... :*

 
At May 29, 2007 11:34 AM, Blogger Eygló said...

Takk stelpur mínar:) Rosalega er gott að eiga góða að!

Gulla, ég skal senda þér reikningsnúmerið mitt og svo get ég skutlað bókinni í póst bara:) Annars langar mig samt að fara að hitta þig og sjá börnin þín líka ;) Kannski spurning um að stefna að því ?

 
At May 29, 2007 4:35 PM, Anonymous Anonymous said...

hæ sagna þin kondiu msn braðum kv iris prakkari folk.isannimalslover

 

Post a Comment

<< Home