Army of me

Friday, April 06, 2007

Um heilahagi og annað duft

Sumir segjast hafa rúnnstykki í heilastað. Að því gefnu finn ég mig knúna til að deila því með ykkur að sjálf hef ég fullt höfuð af Betty Crocket kökumixi. Þetta er svona brúnt duft sem veltist til og frá..og ef ég hristi höfuðið ofsa hratt er komin fín hrista. Verra er samt að ef ég blikka augunum voða hratt koma brún duftský út úr augntóftunum. Það er allt annað en sjarmerandi.

Jæja eigið góðan og langan föstudag..

2 Comments:

At April 06, 2007 8:46 AM, Anonymous Anonymous said...

Ummm, ég elska Betty Crocker... ertu ekki til í að halla höfðinu aðeins til annarrar hliðarinnar og moka duftinu úr eyranu á þér og ofan í kökuform?
Annars er ég með vínber í heila stað því ég er búin að borða á mig gat af þeim yfir þessari bévítans ritgerð...

 
At April 11, 2007 5:18 PM, Anonymous Anonymous said...

Halló sætust,
Sakna þín, ég er ennþá hér og með sama símanúmer.
love you
mamma

 

Post a Comment

<< Home