Home sweet home
Ég var útskrifuð í dag. Ótrúlega spes tilfinning að labba niður í vonandi síðasta sinn með lyfseðla í höndunum. Núna heimsæki ég göngudeildina tvisvar í viku og svo er að öllum líkindum eftirmeðferð á dagskrá í haust. Ég verð í veikindafríi í sumar og þarf að sinna verkefnum í vanskilum og taka próf í haust.
Næsta haust er óákveðið. Ég hef ekki ákveðið hvort ég mæti galvösk í skólann í haust eða ákveð að búta fílinn niður í smærri bita ef svo má að orði komast.
Enn og aftur takk fyrir allar fallegu kveðjurnar. Og þið sem hafið talað um að kíkja í heimsókn; endilega kíkið á mig, ég verð örugglega heima, bara bjalla fyrst svona to be on the safe side ;)
Og munið svo að anda ofan í maga, elsku rýjurnar mínar, og elska friðinn, allt annað er óþarfa tímaeyðsla ;)


5 Comments:
Til hamingju með útskriftina.
Og takk fyrir samveruna í dag.
Love you
Þín systir Lísa
Mikið er gott að þú sért komin heim elsku Eygló. Gerðu ráð fyrir mér í heimsókn mjög fljótlega :)
kveðja frá Daldísi frænku
Til hamingju Eygló mín, verðum í bandi,þín frænka Heiða Björg
TIl hamingju Eygló mín ;* gerum svo eitthvað skemmtilegt í sumar? :) þín Hugrún Lena
Já pottþétt Hugrún:) ég ætla að vera dugleg að koma í heimsókn sko!
Post a Comment
<< Home