Army of me

Wednesday, June 13, 2007

Fjögur ár

Litli spidermanstrákurinn minn er orðinn fjögurra ára! Mér finnst svo stutt síðan ég sat hlæjandi í verkjamóki á gólfinu á fæðingardeildinni og gat ekki skriðið aftur upp í rúmið :) .....já..það er skondin saga og alveg dæmigerð fyrir nördaskap minn og seinheppni. En hey..svona er ég bara af Guði gerð!

Afmælisdagurinn fór vel fram og prinsinn var hinn sáttasti þó veislan sjálf væri búin. Hann er afar stoltur af því að vera orðinn fjögurra ára og finnst hann ekki vitund lítill lengur þó að mamman vilji gjarnan eiga lítinn strák aðeins lengur. Gullkornin eru sum alveg óborganleg. Hér koma þrjú dæmi:

Ísak: Mamma..þú ert eins og nashyrningur
Mamma: Ha? Er ég eins og nashyrningur??
Ísak: Já
Mamma: Af hverju segirðu það ?
Ísak: Æ mér bara finnst það... :p
Takk elskan..hehe
Ísak: Mamma.. ég elska þig
Mamma: *Bráðn* ég elska þig líka rosa mikið
Ísak: (Ákafur) Ég elska þig meira en mótorhjól!
Vá..takk..hehe
Ísak: Ég sagði oft bossi í hvíldinni í dag
Mamma: Ha? af hverju ?
Ísak: Bara..mig bara langaði það
Hann hefur það ekki frá mér!

Dagarnir hafa annars bara verið ljúfir hér í Mýrinni, ég hef haft nóg fyrir stafni, sinni mínum verkefnum samviskusamlega og mæti þangað sem mér er sagt að mæta eins og hlýðinn hvolpur. Þess á milli treð ég ís og hamborgurum í andlitið á mér með Maríu vinkonu. Voða gott að eiga vinkonu í fæðingarorlofi þegar maður sjálfur er heima í veikindafríi..aumingja María fær allt mitt beint í æð. Svo er ég líka orðin ,,stóra frænka" hans Birnis Smára sem er by the way svo gullfallegur og yndislegur og finnst skemmtilegast í heimi að kúka þegar hann er í fanginu á mér:) Ísak kallar hann litla bróður..hehe greinilega orðinn úrkula vonar um að fá systkini! ;)

Já...anyhow..ég er að leka niður eftir bæjarrölt dagsins með Maríu og syni svo ég ætla að segja þetta gott í bili þangað til ég hef eitthvað merkilegt að segja.

Knús á línuna- verið góð við ykkur

Glóda stóra frænka

11 Comments:

At June 13, 2007 6:04 PM, Anonymous Anonymous said...

Já tíminn líður alltof fljótt, það er ótrúlegt að liðin séu fjögur ár, en til hamingju með gullkálfinn ykkar hann er bara bestur.
Og smá um "ekkert" daginn þinn, svoleiðis dagar eru fínir inn á milli maður á bara að vera maður sjálfur og þakka fyrir hvern dag sem maður hefur með sínum nánustu lífið er svo hverfullt. Love you.
mamma

 
At June 14, 2007 4:04 AM, Anonymous Anonymous said...

Úff já tíminn líður sko, það er meir að segja ekkert langt síðan hringt var frá Sólbakkanum og sagt að lítill rauðhaus væri fæddur hihi, man það eins og gerst hafi í gær. Mér finnst ég svo rík að eiga ykkur öll :)
kv.Heiða Björg

 
At June 14, 2007 4:43 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með strákinn og hafðu það gott í sveitinni:)

Kveðja Jóna bekkjasystir:)

 
At June 14, 2007 12:05 PM, Blogger Hrafnhildur said...

Til hamingju með drenginn!! Litli drengurinn minn er 6 að verða 7 en er samt reglulega litla barnið hennar mömmu sinnar vesalings barnið!
kv Hrafnhildur

 
At June 14, 2007 1:47 PM, Anonymous Anonymous said...

Rakst á tilviljun á síðuna þína. Til hamingju með prinsinn, tíminn er svo fljótur að líða.

Kveðja Steinunn Elsa

 
At June 15, 2007 6:15 AM, Anonymous Anonymous said...

Það er rosa gaman að vera stóra frænka og ég nýti mér það óspart eins og eðalprinsinn hefur fengið að njóta góðs af, að ég tel.
Gullkornin sem hjá honum falla eru alveg yndisleg...um að gera að hripa þau niður til að kvelja hann með þegar hann verður unglingur í mútum, sem verður sennilega miklu fyrr en við eigum von á.
Love you
Lísa

 
At June 15, 2007 3:42 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með fallega drenginn þinn. Gaman að rekast á ykkur um daginn, stráksi yndislegur, ófeimin og kátur.

kv
Gunnur, hinu megin við völlinn

 
At June 16, 2007 7:59 AM, Anonymous Anonymous said...

Hæ elskan! Mikið er ég glöð að heyra að allt gengur vel hjá þér :) Ég er búin að hugsa mikið til þín undanfarnar vikur.
Til hamingju með stóra strákinn þinn! Ég veltist um af hlátri við að lesa gullkornin hans, ég skil ekki heldur hvaðan hann hefur þessa ótrúlegu þörf til að segja bossi ;) hehe
En ég vona að þú hafir það gott og vonandi hittumst við fljótlega :)
Kv. Heiða S. bekkjarsystir og hljóðframleiðandi ;)

 
At June 19, 2007 8:27 AM, Anonymous Anonymous said...

Kannast við þetta - held að við séum eitthvað að ruglast í talningunni. Getur varla verið meira en ár .. eitt og hálft tops! A.m.k getur bara ekki staðist að guttarnir okkar séu 4 ára :P

Svo yndislegt að koma við hjá þér og lesa skemmtisögurnar af sjálfri þér ;) Fólkið á skrifstofunni með mér heldur örugglega að ég sé *kúkú* =)

Já heyrði ég sé nú alveg svip með þér og nashryning! svona er barnið skarpt (thíhíhí djókur!!)

Heyrumst bos ... ég meina Eygló ;)

 
At June 19, 2007 8:28 AM, Anonymous Anonymous said...

(já sko .. því ég hlæ annað slagið upp úr þurru og á að vera að vinna .. þessvegna heldur fólkið að ég sé gúgú;) ... )

Ásta .. blonde!

 
At June 19, 2007 4:23 PM, Anonymous Anonymous said...

jiii, en ömurleg vinkona ég gleymdi að hringja á afmælisdaginn eða þegar ég var búin í prófinu (gat víst ekki hugsað skýrt fyrr en sá andsk. var liðinn hjá)..þið áttuð að skamma mig á laugardaginn, ég mundi það samt 2veimur dögum fyrir afmælið. ;-)
En betra er seinnt en aldrei, innilega til hamingju með stóra drenginn ykkar...vá, úff það geta ekki verið fjögur ár síðan hann fæddist!!
Knús í klessu,
Kv. Eva Rún

 

Post a Comment

<< Home