Army of me

Saturday, June 09, 2007

Ekkert-dagar..

Sumir dagar eru bara ekki neitt. Ekkert veður úti og engin líðan sem fylgir með í kaupbæti. Ferlega asnalegir svona dagar þegar allt er einhvern veginn ekki neitt. Undarlegustu hlutir verða hversdagslegir og missa kannski svolítið gildi sitt. Daginn eftir getur maður svo haft allt á hornum sér eða leikið á alls oddi eins og þessi ,,ekkert-dagur" hafi aldrei átt sér stað. Það er greinilegt að það er aldrei hægt að gera manni til geðs! Stundum fæ ég svolitla nostalgíu og ylja mér við gamlar minningar eða rifja upp gleymdar tilfinningar við að hlusta á gömul lög og er ótrúlega svona ,,sentimental" á slæmri íslensku. Þess á milli er ég hörkutól frá neðra og algjör stálgella, tilfinningalaus með öllu og tek þetta allt á kúlinu.

Það eru örugglega allir hættir að lesa..meira bullið sem vellur upp úr manni stundum.

Í dag er ekki ekkert-dagur. Spiderman afmæli í undirbúningi, veðrið fallegt og við tökum þetta allt í nefið, það er ekkert annað í boði.

Eigið góðan dag og góða helgi, rýjurnar mínar stórar og smáar.

1 Comments:

At June 10, 2007 5:30 AM, Anonymous Anonymous said...

Maður verður að eiga ekkert daga til þess að meta hina meira, það þýðir samt ekki að ekkert dagarnir séu slæmir.
En þetta verður sko mega dagur þegar maður mætir í afmælið hjá prinsinum...hlakka svo mikið til og ekki verra þegar prinsinn býður manni sjálfur.
Knús og kossar
Lísa

 

Post a Comment

<< Home