Army of me

Tuesday, June 19, 2007

Að vera einn í heiminum..

Það er hægt að vera einn í heiminum af ýmsum ástæðum. Sumir eru einfaldlega svo gott sem einir í heiminum vegna þess að þeir eiga engan að og það er án efa sorglegasta afbrigði þess að vera einn í heiminum. Aðrir eru einir í heiminum vegna þess að þeir halda að þeir séu það og koma ekki auga á allt fólkið sem styður við bak þeirra.

Þriðja tegund þeirra sem eru einir í heiminum fer í taugarnar á mér. Það er flokkur þeirra sem eru einir í heiminum í þeim skilningi að allir aðrir mega víkja og þeirra þörfum skal mætt nákvæmlega þegar þeim hentar, burtséð frá því hvernig það gæti hentað þeim sem í kringum þá eru. Flokki þrjú tilheyrir semsagt fólkið sem kýs það að vera eitt í heiminum.

Fólk í flokki þrjú eru brjálæðingarnir á innkaupakerrunum í bónus sem valda því að maður fer haltrandi þaðan út. Fólk í flokki þrjú gefur engan séns í umferðinni, á afar erfitt með að bíða í röðum og hefur aldrei komist upp á lag með að nota orð líkt og ,,afsakið" eða ,,fyrirgefðu". Fólk í flokki þrjú er ekki fólk að mínu skapi.

Nú er sennilega illa séð að ég skuli skipta fólki svona upp í flokka en það er alltaf val um að vera á gráu svæði.. grátt getur verið gott.

Já, mikið er kellan djúpvitur í kvöld. Þessi pæling bara poppaði upp í hausinn á mér þegar ég fékk heilt borð í kjöltuna frá konu sem hafði hreiðrað um sig í flokki þrjú og sennilega verið þar lengi.

Góðar stundir
Glóda

8 Comments:

At June 20, 2007 7:01 AM, Anonymous Anonymous said...

Æi veistu ég er alveg sammála þér, en svo er kannski sumir sem eru bara í flokki þrjú þegar þeir eru í umferðinni...þó ég efist nú um það. Alla vegana get ég endalaust pirrað mig á flokki 3 í umferðinni sem og bónusskelfunum.
Enginn ætti að vera sár, nema eins og sagt er ; sannleikanum verður hver sár reiðastur.
Knús og kossar
Lísa

 
At June 21, 2007 3:22 AM, Blogger Unknown said...

...amen á eftir því....veit alveg um hvað þú ert að tala.

kv
Gunns

 
At June 26, 2007 3:43 PM, Anonymous Anonymous said...

arrrg skil svoooo hvað þú átt við..! En heyrðu, með bókina. Ég er alveg glötuð að fara "í næsta hús" til tengdamömmu þinnar. Ætla mér að eignast þessa bók!!! Hvað er heimilisfangið hjá henni.

Luv. Gullan

 
At June 27, 2007 1:40 AM, Blogger Eygló said...

Hæ Gullan mín :) Tengdó býr á Víðivöllum..en þú getur líka gert annað; annað hvort get ég bara sent þér bók í póstkröfu eða þú getur farið á Bókakaffi, held að bækurnar eigi að vera komnar þangað en er samt ekki alveg 100% - svo kannski er betra að ég póstsendi eitt stykki ?;) Segðu bara til..þú ert með meilið mitt, allavega msn!:)

Knús, Eygló

 
At June 27, 2007 1:59 PM, Anonymous Anonymous said...

Heiðaafsakaðu að ég reð mér inní...
en áttu ekki afmæli 21.júlí?

 
At June 27, 2007 2:00 PM, Anonymous Anonymous said...

huh þetta heiða átti ekki að vera þarna...

 
At July 01, 2007 2:32 AM, Blogger Eygló said...

Sigrún Heiða: neibb, ég á afmæli 20.júlí ;)

 
At July 01, 2007 5:27 AM, Anonymous Anonymous said...

ok...
ég er að fara gifta mig 21.júlí..
Var að spá hvort ég það væri ammælið þitt?!:)
:o) :Þ

 

Post a Comment

<< Home