Army of me

Monday, July 30, 2007

Svíþjóð

Jæja, þá er mín loksins búin að dæla Svíþjóðarmyndum inn á tölvuna. Þetta verður myndafærsla mikil ef tæknikallarnir mínir í tölvunni verða samvinnuþýðir. Eins og sjá má á myndinni fyrir ofan fór ansi vel um litla manninn í flugvélinni og foreldrana reyndar líka. Enda vorum við færð yfir á Saga class þar sem Lísa móða var að fljúga með okkur og það var ekki þjónusta á Saga þennan daginn. Við fengum þjónustu samt sem áður og jöpluðum á súkkulaðirúsínum og höfðum það ansi náðugt með extra mikið fótapláss...ahh bara næs!! Takk Lísa :*

Þetta var snilldarferð! Ísak var hress og kátur svona þegar á heildina er litið, smá vesen í byrjun en þá var gott að við gistum hjá mjög klárum lækni og frábærum hjúkrunarfræðingi sem kipptu öllu í liðinn:) Kærar þakkir fyrir það!
Við fengum gott veður. Það ringdi í einn dag, og það var akkúrat dagurinn sem við fórum í bátasiglingu! Það hefur rignt duglega í Svíþjóð í sumar og af þeim sökum þurftum við að leggjast í gólfið í bátnum þegar siglt var undir sumar brýrnar. Það var kostulegt..lágum í polli í smá stund og settumst svo í rennbalut sæti. Sweet. Nei svona í alvöru talað, það var gaman! :)


Svo var þessi forláta stytta á torginu. Sagan segir að feministar hafi komist í málið og heimtað að viss líkamspartur þessa manns væri minnkaður. Af þeim sökum virðist maðurinn vera með svakalega þjóhnappa og hann er ansi fótstór miðað við annað. Kiddi frændi segir að það sé voða erfitt fyrir menn að fá minnimáttarkennd fyrir þessari styttu..hvað svo sem hann átti við með því ;)
Það var sjaldan dauður tími. Það var arkað allan daginn til að skoða sem flest og sjá líka sem flestar H&M búðir í leiðinni.. ;)




Ég gerði margt og mikið..verslaði, át yfir mig, gekk fæturna upp að hnjám, kíkti á ótal söfn og fleira..það steiktasta í ferðinni var samt án efa þegar ég mátaði barnabílstól á Volosafninu!

Svo kíktum við líka í tívolí og á Sædýrasafn þar sem mátti finna allskonar, sprelllifandi dýr sem völsuðu um, til dæmis litla sæta apa:) Svo voru líka slöngur og stórar, loðnar köngulær en þær vou ekki alveg jafn krúttlegar.

Við fórum líka í Liseberg, sem er tívolí Svía. Það var mjög gaman og Ísak fór í sitt fyrsta tívolítæki..hann fór reyndar í tvö og fannst alveg svakalega gaman í þeim báðum!


Svo fórum við Anton líka í draugahús sem var bara ansi hrollvekjandi! Undir lokin var ég orðin ansi taugaveikluð þar sem ófrýnilegt fólk poppaði upp hér og þar svo ég öskraði þegar ég heyrði lítinn smell sem reyndist svo ekki hafa neitt meira í för með sér. Þetta hallærislega öskur mitt gerði það af verkum að öllum brá og svo sprungu allir úr hlátri. Held ég hafi skemmt draugastemninguna ,,aðeins" fyrir þeim sem urðu fyrir því að rölta með okkur Antoni í gegn. Annars mæli ég alveg með þessu draugahúsi!




Ragna og co- ástarþakkir fyrir okkur, þetta var æðislega gaman og frábærlega vel tekið á móti okkur! Þið eigið sko inni stóran greiða hjá okkur. Þessi ferð gleymist seint.







Væntanleg er alveg svakaleg myndafærsla sem fjallar um gæsun Tinnu vinkonu síðastliðinn laugardag og kannski nokkrar grettumyndir af okkur Nínu fái að fljóta með. Við erum alltaf að toppa okkur í grettunum! :) Þetta eru æðislegar myndir - Tinna mín fór gjörsamlega á kostum og hún Nína mín er alltaf alveg met! :) Svo stay tuned!

8 Comments:

At July 30, 2007 10:00 AM, Anonymous Anonymous said...

Ekki vissi ég að Rottan hennar Lísu hefði fengið að fara með til Svíþjóðar ! Og meðal annara orða fengu þið ekki sér þjónustu á leiðinni út ? Annars gaman að sjá myndirnar úr feðalaginu ykkar, hlakka til að hiitta ykkur næst.
kv. mamma skrifar úr rigningunniá Klaustri

 
At July 30, 2007 1:12 PM, Anonymous Anonymous said...

hahahahhaha snilld myndin af þér í barnabílstólnum ;)
kv. Nína
p.s farðu nú að kíkja við á Klömbrum :)

 
At July 30, 2007 3:48 PM, Blogger Eygló said...

Jú rottan góða fékk að fljóta með til Svíþjóðar og kúrir í þessum skrifuðu orðum við hliðina á sofandi dreng inni í rúmi;) Jú, saga class alla leið :)

Nína..ég er á leiðinni..alltaf á leiðinni...trallalalaaaa...

 
At July 30, 2007 7:01 PM, Anonymous Anonymous said...

Alltaf gaman að fljúga með fólk sem mér þykir vænt um og fá að dekra við fólkið.
Jú jú rottan góða er ekki enn komin heim og ég þakka fyrir að hafa ekki tengst henni sterkum tilfinningaböndum þar sem hún átti nú upphaflega bara að fá að skreppa út í smá rúnt. En frændinn var að gera mér það sem refsingu fyrir að koma seint heim. Hemm hemm rottan er nú sjálf að verða ansi sein heim. *sniff sniff* sit nú alein og bíð og bíð eftir henni.
Love you.
Gaman að sjá myndirnar.
Knús
Lísa

 
At July 30, 2007 7:28 PM, Blogger Eygló said...

ég skal segja rotturæskninu að fara að snáfa heim til sín! ;)

 
At July 31, 2007 5:04 AM, Anonymous Anonymous said...

Vá hvað það hefur verið gaman hjá ykkur,takk fyrir að leifa okkur að njóta myndanna.Rotta hvað, veit bara að músin mín fór að heiman í apríl og hefur ekki komið heim síðan. Fer sennilega vel um hana í nýjum heimkynnum,bestu kveðjur,Heiða Björg.

 
At July 31, 2007 9:04 AM, Blogger Eygló said...

Úff já elsku Heiða Björg...músin þín er að verða ansi pattaraleg...hún situr nefnilega inni í nammiskápnum í eldhúsinu og lætur fara vel um sig!
Ég held að það sé bara málið hjá ykkur að kíkja til okkar í kaffi og lokka litlu múslu aftur heim;) Meira hvað þessi tuskudýr laðast að barninu mínu! Og ég get alveg sagt það án þess að roðna að þetta hefur barnið frá mér ;)

 
At August 01, 2007 8:43 AM, Anonymous Anonymous said...

Þau strjúka bara frá manni í umvörpum þessi tuskudýr....lofar ekki góðu fyrir mig.
Já ég kem og sæki rottuna einn daginn, annars er ég alveg viss um að það fer alls ekki illa um hana þar sem hún er núna í góðu yfirlæti og miklu knúsi og dekri.
Fær meira að segja að fara til útlanda...búhú
Knús
Lísa byggir

 

Post a Comment

<< Home