Army of me

Friday, July 20, 2007

Árinu eldri

Jæja þá er enn eitt árið liðið, ég er orðin 27 ára og hálftímanum betur. Þetta líður hratt! Ég fékk smá ellitremma um daginn en ég er komin yfir hann, ég ætla bara að þakka fyrir þau forréttindi að fá að vera 27 ára, það eru ekki allir sem ná þeim aldri.

Dagurinn leggst bara vel í mig, ég ætla að kíkja á Maríu vinkonu og reka aðeins inn nefið upp í vinnu með útlandanammi- skyldutollinn, skiljiði.

Já við erum komin heim frá Svíþjóð þar sem við erum búin að vera í góðu yfirlæti í viku. Ég ætla að fara að hlaða inn myndunum og svo mun ég skrifa skemmtilegan pistil um ferðina von bráðar. Mér finnst nú líka freistandi að koma með nokkur skot á svefnvenjur mágkonu minnar og jafnvel eins og eina safnferð líka en Ragna mín, ég skal vera pen..muhahahahahaha

Eigið góðan dag

Eygló afmælisbarn

9 Comments:

At July 20, 2007 3:22 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með daginn elsku Eygló mín. Hlakka til að lesa alla ferðasöguna veit að það verður skemmtileg lesning eins og allt sem þú skrifar. Eigðu góðan afmælisdag,Heiða Björg frænka

 
At July 20, 2007 3:49 AM, Anonymous Anonymous said...

Elsku Eygló Ída. Til hammó með ammó (þú veist hver er komin í heimsókn þegar þú heyrir þessa kveðju;) Við vonum að þú eigir eftir að eiga góðan afmælisdag, en það hefði verið við hæfi að eyða afmælisdeginum á safninu góða Göteborgs stadsmuseum og eins hefðum við svo gjarnan viljað hafa ykkur lengur hjá okkur. Takk fyrir frábæra viku sem leið alltof fljótt. Bestu kveðjur til Antons og Ísaks Arons.
p.s. þú manst loforðið!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!;)
Svefnpurkan í Göteborg(Gummi Kalli kom með þessa uppástungu og mæstum öllum fannst það vel við hæfi:) og co
Tengdó biðja að heilsa.

 
At July 20, 2007 4:08 AM, Blogger Eygló said...

Hehehehe já Ragna mín, ég skal heiðra loforðið ;) Takk fyrir afmæliskveðjuna. Vonandi hafið þið það gott í Göteborg án okkar, verði ykkur sænska brauðið að góðu! Bið að heilsa finnsku listakonunni

 
At July 20, 2007 4:27 AM, Anonymous Anonymous said...

Innilega til hamingju með daginn Eygló mín og njóttu hans nú :*
Hlakka til að sjá þig, hvenær sem það verður!! :S
Kveðja að austan
Jóka Klóka

 
At July 20, 2007 4:50 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju ammmælisstelpa! Hlakka til að setjast með þér í spjall og held að ég bjóði þér bara hér með upp á kaffi og hnallþórusneið sem ég "læt laga fyrir mig" á einhverju kaffihúsi bæjarins... ;-)
knús Tinna

 
At July 20, 2007 12:40 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæ hæ elsku þið öll.

Er að hugsa um að fara fljótlega í listasafnið með mömmu og pabba. Var að velta því fyrir mér hvort áhugi væri fyrir því hjá ykkur að ég myndi kanna hvort myndir finnsku listakonunnar væru til sölu og hvort þær myndu ekki sóma sér vel í Áltamýrinni, það þarf að vera gott veggpláss til að þær njóti sín eins og þið munið. Vonandi eigið þið góðan dag kveðja Ragnhildur

 
At July 21, 2007 6:58 AM, Anonymous Anonymous said...

Úps 27 til hamingju með það ég trúi þessu bara ekki mér finnst þú ekki geta verið orðin 27 það er svo stutt síðan þú varst bara 7 ekki satt. Bið að heilsa kveðja gamla í sveitinni

 
At July 21, 2007 2:04 PM, Blogger Eygló said...

Heyrðu jú Ragna, ég var að spá í tvær myndir- þessa með íspinnanum og þessa með fætinum sem ko út úr þú veist... held það væri gargandi flott ;)

 
At July 21, 2007 3:18 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með daginn í gær eða kannski ég segi bara til hamingju með 27 árin og 1 dag og nokkra klukkutíma, er það ekki bara betra úr því ég komst ekki í tölvuna í gær. Knús frá Odense, hlakka til að sjá ferðasöguna og myndir, á sjálf eftir að skrifa einsog eina london ferðasögu og skella inn myndum en það verður þegar hægist um á vöktunum. kveðja heiðdís.

 

Post a Comment

<< Home